NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 10
22. maí 2024, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 850 liður 14
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulgs- og framkvæmdanefndar frá 17. maí.
Bæjarstjórn, fundur 378 liður 8
Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar
Mál 2402161 Allur ferill málsins
Æðavarp í landi Fjarðabyggðar. Vísað til baka frá bæjarráði til nánari útfærslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir minnisblað er varðar útboð á æðarvarpi í landi Kollaleiru í Reyðarfirði. Æðarvarp á svæðinu hefur vaxið og dafnað á svæðinu síðastliðin 15 ár, æðarfugl er friðlýstur og því ber sveitarfélaginu og gæta hans og vernda varpsvæðið. Mikilvægt er að gæta að jafnrétti almennings að nýtingarrétti á verðmætum á svæðinu og því telur nefndin best að fara þessa leið, það er að bjóða nýtingarréttinn út. Jafnframt er það æðarfuglinum og varpsvæðinu fyrir bestu að ákveðin umsjónaraðili hugsi um og hlúi að fuglinum fyrir og á meðan varptíma stendur. Þar sem málið hefur tafist og stutt er þangað til varp hefst er lagt til að útboðið verði aðeins til tveggja ára en aftur boðið út að þeim tíma liðnum með lengri fyrirvara. Nefndin vísar erindinu í bæjarráð.
-
2. Samantekt um íbúðaruppbyggingu í Fjarðabyggð síðan 2021
Mál 2405028 Allur ferill málsins
Skipulags- og byggingarfullrúi fer yfir samantekt um íbúðaruppbyggingu í Fjarðabyggð síðan 2021. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar skipulags- og byggingarfulltrúa fyrir samantektina og fagnar aukinni eftirspurn lóða og þeim krafti sem verið hefur í uppbyggingu síðustu ár. Skipulags- og framkvæmdarnefnd hvetur fyrirtæki sem og einstaklinga til dáða í áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu til að mæta þörfum vaxandi samfélags.
-
3. Búðareyri 10 - 730 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2405120 Allur ferill málsins
Búðareyri 10 - 730 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Byggingarleyfi Blómsturvellir 25 breytingar á þaki
Mál 2405051 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Blómsturvellir 25 breytingar á þaki. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna áformin.
-
5. 735 Eskifjarðarhöfn - Framkvæmdaleyfi, stækkun
Mál 2006138 Allur ferill málsins
Ósk um að framlengja leyfið til ágúst 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að framlengja leyfið til ágúst 2025.
-
6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 64
Mál 2405046 Allur ferill málsins
Umsókn um breytingu á lóð og endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 64. Skipulags- og framkvæmdanefnd óskar eftir frekari upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu við stækkun lóðar.
-
7. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
Mál 2308105 Allur ferill málsins
Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd harmar synjun umsóknar í framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2024 er varðar áfangastaðinn Búðarárfoss í Reyðarfirði. Um er að ræða fullhannað verkefni sem væntingar stóðu til að hægt væri að hefja framkvæmdir sumarið 2024.
-
8. Umsókn um leyfi til að halda fiðurfé
Mál 2405102 Allur ferill málsins
Umsókn um leyfi til að halda fiðurfé. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra umhverfismála að gefa út leyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
9. Styrkir til fráveituframkvæmda 2024
Mál 2405059 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði auglýsingu um styrkveitingar til fráveituframkvæmda. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að koma með tillögur að verkefnum sem hægt væri að sækja um í sjóðinn.
-
10. Breyting á samþykkt um fiðurfé
Mál 2404096 Allur ferill málsins
Breyting á samþykkt um fiðurfé. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á samþykkt um fiðurfé og vísar erindinu í bæjarráð.
-
11. Umsókn um stöðuleyfi fyrir kofa
Mál 2405125 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir kofa. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.
-
12. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að koma með tillögu að útfærslu á afslætti á gatnagerðargjöld samkvæmt umræðum á fundinum. Einnig felur nefndin verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir tillögu að hægræðingu í úrgangsmálum í samræmi við niðurstöður sprettfundar.
-
13. Ný staðsetning gámasvæða
Mál 2209189 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að nýrri staðsetningu gámasvæðis á Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð. Nefndin hvetur gámaeigendur þó til að velja frekar gámasvæði á Eskifirði sem er betur útbúið, gámasvæði við Mjóeyrarhöfn verður víkjandi fyrir annarri starfsemi. Sviðstjóra falið að upplýsa gámaeigendur um nýja staðsetningu og hafa eftirlit með flutning gáma. Gámaeigendur bera kostnað af flutning og skulu gámar vera farnir fyrir 14. júní 2024.