NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 11
12. júní 2024, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 853 liður 26
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 3
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Birgir Jónsson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. júní utan liðar 17 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Leikskólinn Dalborg Áfangi III
Mál 2406047 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað sviðssjóra skipulags- og framkvæmdasviðs og fjármálastjóra um stöðu stækkunar Leikskólans Dalborgar á Eskifirði og um mögulegar leiðir á framvindu verkefnisins. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar yfirferðina og leggur til að farinn verði leið B miðað við fyrirlagt minnisblað. Nefndin felur sviðsstjóra að eiga samtal við tilboðsgjafa um frammhaldið.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir árið 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að vísa drögum að starfsáætlun til fjármálastjóra.
-
3. Aðalskipulag breyting Leira 1
Mál 2405213 Allur ferill málsins
Breyting á aðalskipulagi Leiru 1 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Deiliskipulag breyting Leira 1
Mál 2404178 Allur ferill málsins
Deiliskipulag breyting Leira 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti breytingu á deiliskipulagi við Leiru 1. Málinu er vísað í bæjarstjórn.
-
5. Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði
Mál 2406025 Allur ferill málsins
Nýtt deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti tillögu að nýju deiliskipulag og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
6. Byggingarleyfi Uppsetning á forðatanki
Mál 2405214 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi - Uppsetning á forðatanki. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
7. Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2402235 Allur ferill málsins
Grenndarkynningu lokið, ekki var gerð athugasemd. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
8. Byggingarleyfi Frístundahús Kross í Mjóafirði
Mál 2406037 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Frístundahús Kross í Mjóafirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskildum gögnum hefur verið skilað.
-
9. Byggingarleyfi Blómsturvellir 25 breytingar á þaki
Mál 2405051 Allur ferill málsins
Fyrirhugaðar framkvæmdir voru grenndarkynntar eigendum að Blómsturvöllum 27, þau gerðu ekki athugasemd. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Málinu er vísað í bæjarstjórn.
-
10. Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2404086 Allur ferill málsins
Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Niðurstöður grenndarkynningar. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framvæmdanefnd samþykkir áformin fyrir sitt leiti og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
11. Framkvæmdaleyfi fyrir sparkvelli á Breiðdalsvík
Mál 2405182 Allur ferill málsins
Umsókn Hrafnkells Freysgoða um framkvæmdaleyfi fyrir sparkvelli á Breiðdalsvík. Sparkvöllurinn er á nýlegu deiliskipulagi austurhluta Breiðdalsvíkur. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir áformin og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
12. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 19
Mál 2406055 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 19. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingu á lóð fyrir sitt leiti og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.
-
13. Drög að flokkun fimm virkjunarkosta
Mál 2406060 Allur ferill málsins
Drög að flokkun fimm virkjunarkosta. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
14. Æfingatæki Eskifirði
Mál 2405179 Allur ferill málsins
Æfingatæki Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar framtakinu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við Austra varðandi lítilsháttar breytingu á staðsetningu.
-
15. Skipulag Lambeyrarbrautar á Eskifirði
Mál 2406006 Allur ferill málsins
Skipulag Lambeyrarbrautar á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur bæjarverkstjóra að koma með tillögu að úrbótum.
-
16. Umgengni í Fjarðabyggð
Mál 2406066 Allur ferill málsins
Umræður um umgengni í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að herða aðgerðir í umgengnismálum með það að markmiði að bæta ásýnd sveitafélagsins.
-
17. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar
Mál 2402161 Allur ferill málsins
Tekin afstaða til innsendra tilboða í æðavarp í landi Kollaleiru. Alls bárust fimm tilboð. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að gengið sé að tilboði sem frá Lise Nygård Christensen sem jafnframt var hæðsta tilboð.
Þuríður Lillý Sigurðardóttir vék af fundi undir þessum lið.
-
18. Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 2024
Mál 2404016 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir í yfirlögnum á götum á árinu 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir forgangsröðun sviðsstjóra og framvinda verksins verður metin þegar líður á sumarið.