NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 12
26. júní 2024, kl. 16:00 til 17:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Benedikt Jónsson, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Rúnar Ingi Hjartarson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 855 liður 12
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi stendur fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. júní.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina, utan liðar 8, með umboði bæjarstjórnar frá 20. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Breiðimelur 1-3-5-7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2405031 Allur ferill málsins
Grenndarkynningu lokið, engin athugasemd barst. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Erindinu vísað í bæjarráð.
-
2. Byggingarleyfi Óseyri 5
Mál 2406110 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Óseyri 5. Fyrirhugaðar framkvæmdir voru kynntar fyrir Óseyri 9. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Erindinu vísað í bæjarráð.
-
3. Byggingarleyfi Móbakki 16
Mál 2406117 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi að Móbakka 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráforminn.
-
4. Byggingarleyfi Naustahvammur 55 -Hækkun tanka
Mál 2405144 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Naustahvammur 55, Hækkun tanka. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir byggingaráforminn og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað
Mál 2311028 Allur ferill málsins
Farið er fram á að sveitarfélagið komi til móts við SÚN um kostnað vegna förgunar á gamla gervigrasinu. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu til bæjarráðs.
-
6. Leikskólinn Dalborg Áfangi III
Mál 2406047 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar niðurstöður viðræðna sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs við fulltrúa Launafls hf. um útfærslur á verkinu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
7. Hraðatakmarkanir í þéttbýli og gangbrautir
Mál 2406116 Allur ferill málsins
Umræða um aðgerðir til að draga niður hraða í þéttbýli. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur sviðsstjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna að nýrri uppfærslu á umferðasamþykkt. Jafnframt felur nefndin starfsmönnum sviðsins að fara strax í úrbætur er varða hraðatakmarkanir á þeim stöðum sem þörfin er mest.
-
8. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að staðsetningu fjárréttar í Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti staðsetninguna og vísar erindinu til fjallskilanefndar.
-
9. Opnunartími Móttökustöðva
Mál 2311135 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga frá bæjarráði er varðar opnunartíma á móttökustöðum um helgar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
10. Framkvæmdaleyfi varnargarðar Nes- og bakkagil
Mál 2406118 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi varnargarðar Nes- og bakkagil. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykki áformin og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.