Bæjarráð, fundur 855
1. júlí 2024, kl. 08:30 til 09:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 380 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar tillögum nefnda um breytingar við úthlutun fjármagns í römmum áfram til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.
Bæjarráð fór yfir tillögur og vísar þeim áfram til gerðar fjárhagsramma fyrir Fjarðabyggð og stofnanir 2025 með breytingum. Fjárhagsrammar verða lagðir fyrir bæjarráð í framhaldi til endanlegrar staðfestingar.
-
2. Rekstur sundlaugar í Breiðdal 2024
Mál 2406070 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað vegna fjármögnunar opnunar sundlaugar Breiðdals. Málinu vísað til frekari skoðunar á fjármála- og greiningarsviði og til viðaukagerðar í framhaldi af því.
-
3. Strandgata 39, Eskifirði - Sala eigna
Mál 2405132 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála vegna sölu eignarinnar á Strandgötu 39 á Eskifirði.
-
4. Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
Mál 2406138 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga á að farið verði í þarfagreiningu vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir aldurshópinn 60 ára og eldri. Vísað til áframhaldandi hugmyndavinnu í öldungaráði.
-
5. Lífeyrisskuldbinding vegna Uppsala við Brú Lífyerissjóð
Mál 2406113 Allur ferill málsins
Brú lífeyrisjóður gerir kröfu til þátttöku launagreiðanda vegna bakábyrgðar vegna starfsmanna Uppsala hjúkrunarheimilis. Greiðsla ársins 2024 nemur kr. 1,1 m.kr. Um er að ræða bakábyrgð frá þeim tíma sem Fjarðabyggð rak hjúkrunarheimilið.
Bæjarráð samþykkir greiðslu framlags vegna bakábyrgðar fyrir árið 2024.
-
6. Förgun á gervigrasi af knattspyrnuvellinum í Neskaupstað
Mál 2311028 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað um förgun á eldra gervigrasi af knattspyrnuvellinum í Neskaupstað. Fjarðabyggð hyggst bjóða nýtingu á eldra gervigrasi og málinu vísað til úrvinnslu á framkvæmdasviði.
-
7. Breyting á samþykkt um fiðurfé
Mál 2404096 Allur ferill málsins
Vísað til síðari umræðu samþykkt um fiðurfé með áorðnum breytingum sem urðu vegna ábendinga ráðuneytis á milli fyrri og seinni umræðu.
Bæjarráð staðfestir samþykktina með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
-
8. Breiðimelur 1-3-5-7-9 - grenndarkynning
Mál 2405031 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna byggingar fjölbýlis á Breiðamel 1, 3, 5, 7 og 9. Kynningu er lokið og engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð staðfestir niðurstöðu grenndarkynningar.
-
9. Óseyri 5 - grenndarkynning
Mál 2406110 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna byggingar fjölbýlishúss að Óseyri 5. Kynningu er lokið og engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð staðfestir niðurstöðu grenndarkynningar.
-
10. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar að beiðni formanns skipulags- og framkvæmdanefndar málinu til frekari vinnslu í nefndinni.
-
11. Hafnarstjórn - 314
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi stendur fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júní.
Bæjarráð staðfestir fundargerð með umboði bæjarstjórnar frá 20. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
- 11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20252404220
- 11.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 11.3 Öryggismál hafna2206100
- 11.4 Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita2406045
-
12. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 12
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi stendur fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 26. júní.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina, utan liðar 8, með umboði bæjarstjórnar frá 20. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.
- 12.1 Breiðimelur 1-3-5-7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2405031
- 12.2 Byggingarleyfi Óseyri 52406110
- 12.3 Byggingarleyfi Móbakki 162406117
- 12.4 Byggingarleyfi Naustahvammur 55 -Hækkun tanka2405144
- 12.5 Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað2311028
- 12.6 Leikskólinn Dalborg Áfangi III2406047
- 12.7 Hraðatakmarkanir í þéttbýli og gangbrautir2406116
- 12.8 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
- 12.9 Opnunartími Móttökustöðva2311135
- 12.10 Framkvæmdaleyfi varnargarðar Nes- og bakkagil2406118