Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 314

10. júní 2024, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 855 liður 11

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi stendur fundargerð hafnarstjórnar frá 10. júní.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð með umboði bæjarstjórnar frá 20. júní með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025

    Mál 2404220 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025. Hafnarstjórn samþykkir framlagt minnisblað og vísar til fjármálastjóra til fjárhagsáætlunargerðar.

  2. 2. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda við nýja Frystihússbryggju á Eskifirði. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.

  3. 3. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Farið yfir öryggismál hafna. Hafnarstjórn þakkar kynninguna á því sem er að gerast í þeim efnum og felur verkefnastjóra hafna að halda öryggismálunum áfram í forgrunni.

  4. 4. Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita

    Mál 2406045 Allur ferill málsins

    Lögð fram ósk Hauks Ingólfssonar um leyfi til aðgangs að Norðfjarðarvita vegna þátttöku með verkefnið ÓM í listahátíðinni Innsævi, menningar- og listahátíðar Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir að veita aðgang að vitanum en minnir á öryggismálin og felur Menningarstofu að hafa eftirlit með framkvæmd verkefnisins.