Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 313

27. maí 2024, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Heimir Snær Gylfason, formaður
  • Árni Björn Guðmundarson, varamaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, varamaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 851 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. maí tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 378 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025

    Mál 2404220 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025

  2. 2. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Frystihússbryggjuna á Eskifirði

  3. 3. Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2404206 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirhugaða breytingu bakvaktafyrirkomulags á Fjarðabyggðarhöfnum

  4. 4. Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2405143 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Eimskips um byggingaráform og byggingarleyfi á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn fagnar fyrirhugaðri uppbyggingu fyrirtækisins á svæðinu. Málinu er vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar. Verkefnastjóra hafna er falið að eiga samtal við byggingafulltrúa sem og fyrirtækið og leggja fyrir að nýju.

  5. 5. Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins á Eskifirði 2024

    Mál 2405136 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk frá Sjómannadagsráði Eskifjarðar til að standa straum af dagskrá Sjómannadagsins á Eskifirði 2024. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.

  6. 6. Styrkur vegna umsjónar með dagskrá sjómanndagsins í Neskaupstað

    Mál 2405170 Allur ferill málsins

    Ósk Sjómannadagsráðs Neskaupstaðar um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadeginum 2024. Hafnarstjórn samþykkir að veita hefðbundinn styrk.

  7. 7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024

    Mál 2402027 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir 462. og 463. fundar Hafnasambands Íslands