Bæjarráð, fundur 851
3. júní 2024, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 378 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. júní staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
Mál 2301057 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga varðandi lokafrágang á endurbótum við grunnskólahúsnæðið á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir sbr. 1. tillögu sem lögð er fram í minnisblaði að fjárhæð um 111 m.kr. Þar með er farið í alla verkþætti sem eftir eru í endurbótum á húsnæðinu. Vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2024.
-
2. Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 2024
Mál 2404016 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir í yfirlögnum á götum á árinu 2024.
Bæjarráð samþykkir forgangsröðun sviðsstjóra og framvinda verksins verður metin þegar líður á sumarið.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025
Mál 2404224 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um fjárhagsáætlun málaflokka sem heyra undir bæjarráð.
Bæjarráð vísar tillögum sínum að römmum til fjárhagsáætlunargerðar.
-
4. Starfs - og rýnihópar í fræðslumálum
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Framhaldið umræðu um fræðslumál í Fjarðabyggð.
Drög að erindisbréfum koma fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
5. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
Mál 2308105 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi við Ferðamálastofu um uppbyggingu áfangastaðar ferðamanna við Streytishvarf.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
6. Tjaldsvæðið Stöðvarfirði
Mál 2403203 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur lögmanns eiganda fasteignarinnar að Réttarholti 1 á Stöðvarfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt formanni bæjarráðs að funda með eiganda fasteignarinnar. Bæjarritara falið að svara bréfritara.
-
7. Umsókn um íþróttastyrk - Siglingaklúbburinn
Mál 2404227 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkti fyrir sitt leyti drög að samning um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára við Siglingaklúbb Austurlands.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
8. Umsókn um íþróttastyrk - Blær
Mál 2404204 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkti fyrir sitt leyti drög að samningi við Hestamannafélagið Blæ um rekstrar- og uppbyggingarstyrk til þriggja ára.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
9. Salerni með aðgengi fyrir hjólastóla
Mál 2405184 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Hollvinasamtökum Skrúðs um aðgengismál í Félagsheimilinu Skrúð.
Bæjarráð vísar erindi til skipulags- og framkvæmdasviðs og aðgengisfulltrúa sveitarfélagsins.
-
10. Reglur um viðbrögð við ágangi búfjár
Mál 2404088 Allur ferill málsins
Fjallað um ágang búfjár og viðbrögð við honum.
Bæjarráð tekur afstöðu til beiðna berist þær með tilliti til mats á ágangi, meðalhófi og annarra aðstæðna.
-
11. Ósk um samstarf til dreyfingar vöggugjafa
Mál 2405211 Allur ferill málsins
Samkaup, fyrir hönd Kjörbúðarinnar óskar eftir samstarfi við Fjarðabyggð um miðlun gjafa til nýbakaðra foreldra.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samstarfið og vísar erindi til fjölskyldusviðs til útfærslu.
-
12. Fjölskyldunefnd - 8.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. maí tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 12.1 Heilsuefling 60+
- 12.2 Leikskólapláss á Breiðdalsvík
- 12.3 Aðgengi barna úr Grindavík að frístundastarfi og vinnuskólum sumarið 2024.
- 12.4 Upplýsingar um leik- og grunnskóla og frístundastarf Grindavíkur
- 12.5 Umsókn um íþróttastyrk
- 12.6 Umsókn um íþróttastyrk
- 12.7 Umsókn um íþróttastyrk
- 12.8 Umsókn um íþróttastyrk
- 12.9 Umsókn um íþróttastyrk
- 12.10 Umsókn um íþróttastyrk
-
13. Hafnarstjórn - 313
Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. maí tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20252404220
- 13.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 13.3 Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna2404206
- 13.4 Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2405143
- 13.5 Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins á Eskifirði 20242405136
- 13.6 Styrkur vegna umsjónar með dagskrá sjómanndagsins í Neskaupstað2405170
- 13.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027