Bæjarráð, fundur 852
10. júní 2024, kl. 08:30 til 13:05, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 10. júní staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um stofnframlög á árinu 2024
Mál 2403005 Allur ferill málsins
HMS hefur samþykkt umsókn Fjarðabyggðar um stofnframlag vegna kaupa á tveimur íbúðum á Eskifirði fyrir tekju- og eignalága á vinnumarkaði.
Bæjarráð samþykkir að framvísa stofnframlögum vegna kaupa íbúðanna til Brákar íbúðafélags hses.
-
2. Fasteignamat 2025
Mál 2406008 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt fjármálastjóra um breytingar á fasteignamati í Fjarðabyggð á milli áranna 2024 og 2025. Einnig lögð fram til glöggvunar skýrsla Byggðastofnunar á samanburði á fasteignagjöldum milli sveitarfélaga á árinu 2024 og birt var í mars s.l.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2025.
-
3. Þróun hafnarsvæða
Mál 2108027 Allur ferill málsins
Farið yfir þróunarmál hafnarstarfsemi.
-
4. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Mál 2404177 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju hugmyndir að rafrænni útfærslu á umhaldi og fyrirkomulagi við þjónustu í úrgangsmálum.
Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
5. Opnunartími Móttökustöðva
Mál 2311135 Allur ferill málsins
Tekin umræða um opnunartíma móttökustöðva í Fjarðabyggð.
Bæjarráð tekur málið fyrir nýju á næsta fundi sínum.
-
6. Skipulags- og framkvæmdasvið verkefni 2024
Mál 2403234 Allur ferill málsins
Farið yfir skipulag og starfsemi skipulags- og framkvæmdasviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að málefnum þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
7. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá landeigendum Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs sauðfjár.
Bæjarráð felur bæjarritara að leggja fyrir drög að svari á næsta fundi bæjarráðs.
-
8. Beiðni um sameiginlega tilnefningu sveitarfélaga í hreindýraráð 2024 -2028
Mál 2406036 Allur ferill málsins
Framlagt erindi umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis um skipun sameiginlegs fulltrúa sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vopnafjarðarhreppurs í hreindýraráð.
Bæjarráð óskar eftir að Samband sveitarfélaga á Austurlandi hafi skipun sameiginlegs fulltrúa sveitarfélaganna óbreytta.
-
9. Starfs - og rýnihópar í fræðslumálum
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Framlögð drög að erindisbréfum fyrir starfs- og rýnihópa ásamt tillögu að tilnefningu aðila í starfshópinn.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf starfs- og rýnihópa. Hóparnir verða skipaðir fulltrúum bæjarráðs, bæjarstjóra, skólastjórum stofnana, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu. Fyrsti fundar hópanna verður á næstu dögum.
-
10. Farsældarráð Austurlands
Mál 2406046 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna farsældarráðs Austurlands, skipulag þess og starfsemi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjölskyldunefndar til umfjöllunar.
-
11. Ósk um kaup á Strandgötu 62, 740 Neskaupstað
Mál 2406057 Allur ferill málsins
Framlögð ósk Heimis Snæs Gylfasonar um kaup á Strandgötu 62 á Norðfirði.
Strandgata 62 var keypt til niðurrifs vegna breytinga á skipulagi í tengslum við uppbyggingu ofanflóðavarna. Því getur bæjarráð ekki orðið við erindinu en þakkar sýndan áhuga.
-
12. Íslendingadagar 27. -30. sept. 2024
Mál 2406011 Allur ferill málsins
Framlagt boð frá Gravelines vinabæ Fjarðabyggðar um þátttöku í Íslandsdögum 27. til 30. september nk.
Vísað til forseta bæjarstjórnar til vinnslu. Lagt fram í bæjarráði að nýju.
-
13. Fjölskyldunefnd - 9.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 3. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
- 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
- 13.2 Umbótaáætlanir vegna foreldrakönnunar Skólavoginnar
- 13.3 Skólafrístund
- 13.4 Boð um þátttöku í samráði Hvítbók í málefnum innflytjenda