Bæjarráð, fundur 853
18. júní 2024, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 2
Fundargerð bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. júní utan liðar 15 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt fjármálastjóra á tillögum frá nefndum um breytingar að vori á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025.
Bæjarráð vísar tillögum áfram til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 innan fjölskyldusviðs teknar fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025- 2028.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025
Mál 2404223 Allur ferill málsins
Tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 innan Menningarstofu teknar fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025- 2028.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025
Mál 2404224 Allur ferill málsins
Tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 innan liðsins sameiginlegur kostnaður teknar fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025- 2028.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 innan skipulags- og framkvæmdanefndar teknar fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025- 2028.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Mál 2404220 Allur ferill málsins
Tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 innan hafnarstjórnar teknar fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025- 2028.
-
7. Rekstur málaflokka 2024
Mál 2403158 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - apríl 2024 auk yfirlits yfir skatttekjur og launakostnað janúar - maí 2024. Einnig lagt fram yfirlit yfir reksturinn fyrstu 4 mánuði ársins.
-
8. Leikskólinn Dalborg Áfangi III
Mál 2406047 Allur ferill málsins
Tillögu skipulags- og framkvæmdanefndar um að farinn yrði leið B vegna framvindu framkvæmda við Leikskólann Dalborg sbr. minnisblað lögð fyrir. Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og framkvæmdanefndar og felur sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ræða við Launafl um útfærslur á verkliðum og leggja fyrir að nýju í bæjarráði.
-
9. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Mál tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að svari til landeiganda að Óseyri í Stöðvarfirði.
-
10. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Mál 2404177 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju hugmyndir að rafrænni útfærslu á umhaldi og fyrirkomulagi við þjónustu í úrgangsmálum.
Bæjarráð samþykkir að skipa formanna bæjarráðs, formann skipulags- og framkvæmdanefndar auk verkefnastjóra umhverfismála og upplýsinga- og kynningarfulltrúa í starfshóp til að þróa áfram rafræna útfærslu í úrgangsmálum í samvinnu við aðila.
-
11. Opnunartími móttökustöðva
Mál 2311135 Allur ferill málsins
Teknar fyrir að nýja tillögur um aukin opnunartíma og fyrirkomulag móttökustöðva.
Lögð fram tillaga að tilraunaverkefni um að opnað verði fyrir móttöku á ákveðnum flokkum í flokkuðu sorpi alla laugardaga til loka ágústmánaðar í sumar á grenndarstöðvum í Fjarðabyggð. Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að vinna tillöguna áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
12. Beiðni um umsögn vegna tilraunaleyfis til skelræktar
Mál 2406068 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Matvælastofnunar þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar Norhtlight Seafood ehf. um nýtt tilraunaleyfi til skeldýraræktunar á Bláskel í Norðfjarðarflóa.
Bæjarráð samþykkir að veita umsögn vegna tilraunaleyfis til skelræktar í Norðfjarðarflóa. Bæjarráð felur bæjarritara að rita drög að umsögn og fá nánari upplýsingar um starfsemina og afla álits Umhverfisstofnunar. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
13. Sameiginlegur fundur sveitarstjórna Fjarðabyggðar og Fljótsdalshrepps
Mál 2406069 Allur ferill málsins
Lögð fram fundargerð og ályktun sameiginlegs fundar sveitarstjórnar Fjarðabyggðar og Fljótsdalshrepps.
Bæjarráð þakkar fyrir ánægjulega heimsókn frá Fljótsdal en tilefni fundarins var árleg yfirferð sveitarfélaganna á sameiginlegum hagsmunamálum og samvinnuverkefnum. Fjarðabyggð hlakkar til áframhaldandi samstarfs sveitarfélaganna.
-
14. Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025
Mál 2403289 Allur ferill málsins
Umfjöllun um kennslutímamagn grunnskóla.
Bæjarráð fjallaði um úthlutun tíma og felur stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu að vinna málið áfram og fylgja því eftir.
-
15. Æðavarp í landi Fjarðabyggðar
Mál 2402161 Allur ferill málsins
Framlögð tilboð í æðavarp í landi Kollaleiru. Alls bárust fimm tilboð. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að gengið sé að tilboði sem frá Lise Nygård Christensen sem jafnframt var hæsta tilboð.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og framkvæmdanefndar og felur verkefnisstjóra umhverfismála að ganga til samninga við hæstbjóðanda.
-
16. Framlag til Skemmtifélags starfsmanna Fjarðabyggðar
Mál 2404069 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Skemmtifélags starfsmanna Fjarðabyggðar um aukið framlag til SFF.
Bæjarráð vísar beiðninni til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.
-
17. Sumarlokun bæjarskrifstofu 2024
Mál 2404105 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um lokun bæjarskrifstofu sumarið 2024 í tvær vikur fyrir og eftir verslunarmannahelgina.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar til kynningar á vef sveitarfélagsins.
-
18. Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda af Fjarðabraut 54 Stöðvarfirði 2024
Mál 2406073 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni frá Veraldarvinum um styrk til greiðslu fasteignagjalda.
Bæjarráð hafnar beiðni um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Jafnframt telur bæjarráð að starfsemi Veraldarvina falli ekki undir ákvæði sem við eiga um styrki á móti fasteignaskatti.
-
19. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 19
Mál 2406055 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir endurnýjun lóðaleigusamnings og stækkun lóðar Selnes 19. Bæjarráð felur byggingafulltrúa að gefa út nýtt lóðablað ásamt nýjum lóðaleigusamning.
-
20. Umsókn um Aflamark Byggðastofnunar á Breiðdalsvík
Mál 2406084 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Byggðastofnun um úthlutun á byggðakvóta fyrir Breidalsvík.
Bæjarráð felur að bæjarritara að veita umsögn um tillögu Byggðastofnunar um úthlutun byggðakvótans.
-
21. Umsókn um íþróttastyrk - Farfuglar
Mál 2405185 Allur ferill málsins
Skátafélagið Farfuglar sækir um tómstundastyrk.
Bæjarráð samþykkir að veita skátafélaginu Farfuglar íþrótta- og tómstundastyrk að upphæð 120.000 kr. Upphæðin rúmast innan fjárheimilda til íþróttastyrkja innan fjölskyldusviðs.
-
22. Styrktarsjóður EBÍ 2024
Mál 2403209 Allur ferill málsins
Framlagt svar styrktarsjóðs EBÍ um framlag til frumhönnunar lóðar og fasteigna á Stríðsárasafni en 700.000 kr. styrkur fékkst.
Bæjarráð þakkar styrkveitinguna.
-
23. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Mál 2401142 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar 948. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
24. Fjölskyldunefnd - 10.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu
- 24.1 leikskóli Breiðdals
- 24.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
- 24.3 Öldungaráð - 11
- 24.4 Ungmennaráð - 14
-
25. Stjórn menningarstofu - 6
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 12. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 25.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20252404223
- 25.2 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20242402237
- 25.3 Verkefni menningarstofu 20242401039
- 25.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
-
26. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 11
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 26.1 Leikskólinn Dalborg Áfangi III2406047
- 26.2 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
- 26.3 Aðalskipulag breyting Leira 12405213
- 26.4 Deiliskipulag breyting Leira 12404178
- 26.5 Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði2406025
- 26.6 Byggingarleyfi Uppsetning á forðatanki2405214
- 26.7 Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2402235
- 26.8 Byggingarleyfi Frístundahús Kross í Mjóafirði2406037
- 26.9 Byggingarleyfi Blómsturvellir 25 breytingar á þaki2405051
- 26.10 Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2404086
- 26.11 Framkvæmdaleyfi fyrir sparkvelli á Breiðdalsvík2405182
- 26.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 192406055
- 26.13 Drög að flokkun fimm virkjunarkosta2406060
- 26.14 Æfingatæki Eskifirði2405179
- 26.15 Skipulag Lambeyrarbrautar á Eskifirði2406006
- 26.16 Umgengni í Fjarðabyggð2406066
- 26.17 Æðavarp í landi Fjarðabyggðar2402161
- 26.18 Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 20242404016
-
27. Öldungaráð - 11
Fundargerð öldungaráðs frá 28. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 27.1 Janusarverkefnið 20222206067
- 27.2 Bæklingur um málefni eldra fólks2405168
- 27.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
- 27.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
- 27.5 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242309168
- 27.6 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk2404011
-
28. Ungmennaráð - 14
Fundargerð ungmennaráðs frá 8. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 28.1 Kuldaboli 20242404072
- 28.2 Heimsókn lögreglu til ungmennaráðs2405024
- 28.3 Kynning á starfamessu til ungmennaráðs2405025
-
29. Drög að flokkun fimm virkjunarkosta
Mál 2406060 Allur ferill málsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að veita umsögn vegna tillagna um að setja Hamarsvirkjun í verndunarflokk.
Bæjarráð felur bæjarritara að semja drög að umsögn þar sem framlagðri tillögu um verndarflokk Hamarsvirkjunar er mótmælt. Bæjarritara falið að senda bæjarráði drög að umsögn til samþykktar.