Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 854

24. júní 2024, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 380 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

    Engin tók til máls.

Dagskrá

  1. 1. Starfsemi Ilms

    Mál 2406071 Allur ferill málsins

    Fulltrúar fyrirtækisins Ilms mættu á fundin kl. 8:30 og gerðu grein fyrir áformum um uppbyggingu fyrirtækisins.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar tillögum nefnda um breytingar við úthlutun fjármagns í römmum áfram til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2025.

  3. 3. Tekjur Fjarðabyggðar 2024 og áhrif loðnubrests

    Mál 2406099 Allur ferill málsins

    Lögð fram greinargerð fjármálastjóra um nýja áætlun um tekjur Fjarðabyggðar á árinu 2024 ásamt greiningu á áhrifum loðnubrests á þær.

  4. 4. Umsókn um stofnframlög á árinu 2024

    Mál 2403005 Allur ferill málsins

    HMS hefur samþykkt umsókn Fjarðabyggðar um stofnframlag vegna byggingar á búsetukjarna á Reyðarfirði sem sérstakt búsetuúrræði fyrir fatlaða einstaklinga. Bæjarráð samþykkir að framvísa stofnframlögum vegna byggingar búsetukjarnans til Brákar íbúðafélags hses.

  5. 5. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar.

    Mál 2406100 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Lífeyrissjóðsins Brúar um endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar. Sjóðurinn leggur til að endurgreiðsluhlutfall Fjarðabyggðar til sjóðsins verði 74% á árinu 2024. Bæjarráð samþykkir tillögu sjóðsins að endurgreiðsluhlutfalli fyrir árið 2024

  6. 6. Leikskólinn Dalborg Áfangi III

    Mál 2406047 Allur ferill málsins

    Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og framkvæmdanefndar vegna framvindu framkvæmda við Leikskólann Dalborg að loknum viðræðum sviðstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs við fulltrúa Launafls hf. um útfærslur á verkinu.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og felur bæjarstjóra að undirrita samninga henni tengdri. Gert er ráð fyrir að verklok verði 15. júní 2025.

  7. 7. Opnunartími Móttökustöðva

    Mál 2311135 Allur ferill málsins

    Teknar fyrir að nýja tillögur um aukin opnunartíma og fyrirkomulag móttökustöðva. Lagt fram minnisblað um útfærslu vegna tillögu að tilraunaverkefni um aukin opnunartíma um helgar í júlí og ágúst. Sviðstjóra falið að útfæra framkvæmd tilögunnar.

  8. 8. Aðalfundarboð 2024 - Olíusamlagið

    Mál 2406098 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað svf. en fundur er boðaður mánudaginn 24. júní kl. 17:00

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  9. 9. Ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna leikskóla.

    Mál 2406090 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf Jafnréttisstofu vegna ábyrgðar og hlutverks sveitarfélaga milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar.