Ungmennaráð, fundur 14
8. maí 2024, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Hólmfríður M. Benediktsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Elín Eik Guðjónsdóttir, aðalmaður
- Margarette B. Sveinbjörnsdóttir, aðalmaður
- Tinna Rut Hjartardóttir, aðalmaður
- Emilía Björk Ulathowska, aðalmaður
- Pálína Hrönn Garðarsdóttir, aðalmaður
- Unna Dís Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Eyvör Rán Ívarsdóttir, aðalmaður
- Sævar Emil Ragnarsson, varamaður
Starfsmenn
- Hólmfríður M. Benediktsdóttir, embættismaður
- Magnús Árni Gunnarsson
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Fjölskyldunefnd, fundur 10 liður 4
Fundargerð ungmennaráðs kynnt fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd leggur til að fundarlið 1. um Kuldabola verði vísað áfram til bæjarráðs.
Bæjarráð, fundur 853 liður 28
Fundargerð ungmennaráðs frá 8. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 379 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð ungmennaráðs frá 8. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kuldaboli 2024
Mál 2404072 Allur ferill málsins
Ungmennaráð vill að Kuldaboli haldi áfram að vera yfir nóttu en bendir á að hugsanlegt sé betra að nýta íþróttahúsið á Reyðarfirði sem gistipláss. Við það eykst öryggi þar sem sýnileikinn yrði meiri yfir ungmennum. Einnig færi betur um ungmennin í íþróttahúsinu þar sem mikill kuldi er í höllinni.
-
2. Heimsókn lögreglu til ungmennaráðs
Mál 2405024 Allur ferill málsins
Lögreglan kom í heimsókn til ungmennaráðs í spjall og fá ábendingar um hvernig megi betur ná til ungs fólks.
-
3. Kynning á starfamessu til ungmennaráðs
Mál 2405025 Allur ferill málsins
Starfamessa var kynnt fyrir ungmennaráði og ritaði ungmennaráð niður nokkra punkta fyrir Starfamessuna. Ungmennaráð hefur einnig áhuga á að koma að skipulagi Starfamessu 2024.