Fjölskyldunefnd, fundur 10
10. júní 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Helga Rakel Arnardóttir, varamaður
- Sigurjón Rúnarsson, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Magnús Árni Gunnarsson
Dagskrá
-
1. leikskóli Breiðdals
Mál 2405192 Allur ferill málsins
Skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fór yfir samantekt skólaráðs Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla um mögulega stækkun leikskólans Ástúns vegna væntanlegrar fjölgunar barna í leikskólanum. Fjölskyldunefnd samþykkir að vinna útfrá tillögu 5 sem snýr að tilfærslu leikskólans. Nefndin felur sviðsstjóra Fjölskyldusviðs að funda með dagvist eldri borgara varðandi tillöguna og kalla eftir athugasemdum. Málið tekið fyrir að nýju þegar samráðið hefur farið fram.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Fjölkyldunefnd samþykkir að vísa starfsáætlun fjölskyldunefndar yfir til fjármálastjóra.
-
3. Öldungaráð - 11
Fundargerð Öldungaráðs kynnt fjölskyldunefnd.
- 3.1 Janusarverkefnið 20222206067
- 3.2 Bæklingur um málefni eldra fólks2405168
- 3.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
- 3.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
- 3.5 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242309168
- 3.6 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk2404011
-
4. Ungmennaráð - 14
Fundargerð ungmennaráðs kynnt fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd leggur til að fundarlið 1. um Kuldabola verði vísað áfram til bæjarráðs.
- 4.1 Kuldaboli 20242404072
- 4.2 Heimsókn lögreglu til ungmennaráðs2405024
- 4.3 Kynning á starfamessu til ungmennaráðs2405025