Fjölskyldunefnd, fundur 11
9. september 2024, kl. 16:15 til 19:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 863 liður 14
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. september tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 4
Fundargerð 11. fundar fjölskyldunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu
Engin tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Staðan á skólum við upphaf skólaársins 2024-2025
Mál 2408087 Allur ferill málsins
Farið var yfir stöðu í skólum Fjarðabyggðar við upphaf á nýju skólaári 2024-2025. Áfram er unnið að því að auglýsa og manna lausar stöður.
-
2. leikskóli Breiðdals
Mál 2405192 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd leggur til að húsnæði leikskólans verði stækkað inn í núverandi húsnæði bókasafnsins enda er það einföld og hagkvæm aðgerð. Metið verði með skólastjóra og forstöðumanni bókasafnsins hvort ekki sé hægt að nýta betur húsnæði bókasafnins sem eftir stendur með það að sjónarmiði að þjónusta þess verði áfram sú sama við nemendur og íbúa Breiðdals. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar á skipulags- og framkvæmdasviði. Jafnframt verður unnið að útfærslu varðandi skjólsæld við skólann.
-
3. Trappa
Mál 2408052 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar kostnaði vegna sérfræðiþjónustu talmeinafræðinga til gerðar viðauka gagnvart yfirstandandi ári. Jafnframt samþykkir fjölskyldunefnd fyrirliggjandi samning og felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að ganga frá undirritun hans.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Mál 2404222 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd hefur fjallað um bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2025. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
-
5. Kaup á tölvum fyrir nemendur grunnskólanna
Mál 2408086 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar endurnýjun á tölvu- og tækjakaupum til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2025. Málið tekið fyrir að nýju við gerð fjárhagsáætlunar.
-
6. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Mál 2407021 Allur ferill málsins
Kynning á framlögum vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða sveitarfélaga.
-
7. Íþróttavika Evrópu 23-30. september 2024
Mál 2405176 Allur ferill málsins
Stjórnanda íþrótta- og tómstundamála er falið að hafa samband við öll íþróttafélög í Fjarðabyggð til kynna verkefni og hvetja til þátttöku þeirra.
-
8. Farsældarráð Austurlands
Mál 2406046 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd lýsir sig reiðubúna til að taka þátt í farsældarráði Austurlands.
-
9. Kuldaboli 2024
Mál 2404072 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd leggur til að starfsfólk félagsmiðstöðva kanni afstöðu forráðamanna til þess að taka þátt í viðburðinum með því að annast gæslu á meðan á næturgistingu stendur. Jafnframt er lagt til að gisting á meðan Kuldabola stendur sé færð yfir í íþróttahúsið á Reyðarfirði og ekki verði gist í tjöldum. Breytt tilhögun er tilkomin vegna kröfu um auknar öryggisráðstafanir. Ekki verður hægt að halda Kuldabola með næturgistingu án aðkomu forráðamanna.
-
10. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2024
Mál 2408033 Allur ferill málsins
Tekið fyrir umsókn Kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk. Málinu vísað til sviðsstjóra fjölskyldusviðs og henni falið að klára beiðnina.
-
11. Segulspjöld með útivistareglum
Mál 2409008 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd þakkar kynningu á segulspjöldum með útivistartíma barna.
-
12. Náttúruskólinn
Mál 2409019 Allur ferill málsins
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að skoða málið nánar og koma með tillögu að útfærslu.
-
13. Skóla-styrkleikar
Mál 2409020 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar skólastyrkleikunum til umsagnar hjá skólastjórum grunnskólanna í Fjarðabyggð. Nefndin óskar eftir afstöðu skólanna um hvort að þeir vilja taka þátt og þá með hvaða hætti það yrði gert.
-
14. Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 2405019 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu leggur fram til kynningar samninga um akstur skólabarna úr dreifbýli. Fjölskyldunefnd samþykkir gerða samninga.
-
15. Samtal um tónlistarskóla - breytingar til umsagnar
Mál 2408081 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd vísar umsagnarbeiðni til tónlistarskólastjóra Fjarðabyggðar.