Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 12

16. september 2024, kl. 16:15 til 18:00, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Inga Rún Beck Sigfúsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 864 liður 11

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 383 liður 3

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samkomulag um samstarf vegna leigíbúða í búsetukjarna Reyðarfirði

    Mál 2409078 Allur ferill málsins

    Samkomulag um samstarf vegna leiguíbúða íbúðakjarna á Reyðarfirði lagt fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leiti þjónustusamning um íbúðakjarna á Reyðarfirði.

  2. 2. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Stjórnandi barnaverndarþjónustu og farsældar fer yfir sískráningar og þróun mála í barnavernd.

  3. 3. Öldungaráð - 12

    Fundargerðin í heild

    Farið yfir fundargerð öldungaráðs

    1. 3.1 Þarfagreinin vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 602406138
  4. 4. Sprettur -samþætting þjónustu

    Mál 2001250 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að leggja af notkun hugtaksins Sprettur um samþætta þjónustu og snemmtæka íhlutun. Þess í stað verður notast við hugtakið „samþætt þjónusta“. Verklagið sem hefur reynst vel í Spretti verður áfram notað og það sem hefur reynst vel en sömuleiðis verður verklag endurskoðað og þróað eftir því sem þekkingu og reynslu fleygir fram í samræmi við ráðgjöf Barna- og fjölskyldustofu. Áfram verður lögð mikil áhersla á að þjónusta börn og fjölskyldur þeirra vel og vandlega eins hefur verið lagt mikið kapp á síðustu ár.

  5. 5. Kuldaboli 2024

    Mál 2404072 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar hefur ákveðið að bjóða ekki upp á næturgistingu á Kuldabola. Ástæðan fyrir þessari ákvörðun er fyrst og fremst öryggisástæður, þar sem aðstæður eru ekki taldar uppfylla nauðsynlegar kröfur um öryggi gesta. Ljóst er að dregið hefði úr þátttöku á Kuldabola ef áfram hefði verið lagt upp með næturgistingu á viðburðinum.

    Fjölskyldunefnd mun áfram leggja áherslu á að skapa öruggt og skemmtilegt umhverfi fyrir þátttakendur á Kuldabola, án þess að bjóða upp á næturgistingu.

  6. 6. Áfallamiðstöð

    Mál 2409092 Allur ferill málsins

    Í kjölfar samfélagslegra áfalla í Fjarðabyggð var ljóst að bregðast þyrfti við með stuðningi við íbúa sveitarfélagsins. Þessir atburðir féllu ekki undir hlutverk almannavarna og var því ákveðið að fjölskyldusvið Fjarðabyggðar tæki að sér leiðandi hlutverk í verkefninu með stuðningi frá Rauða krossinum, kirkjunni og HSA.

  7. 7. Fjárhagsáætlunagerð yfirferð gjaldskráa 2024

    Mál 2409113 Allur ferill málsins

    Formaður nefndar fer yfir núgildandi gjaldskráa fjölskyldusviðs sem liður í vinnu við fjárhagsáætlun 2025.

  8. 8. Fjölmenningaráð

    Mál 2303056 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir drög að erindisbréfi fjölmenningarráðs og vísar því áfram til bæjarstjórnar.

  9. 9. Menntaþing 2024

    Mál 2409059 Allur ferill málsins

    Fyrirhugað menntaþing þann 30. september 2024 kynnt fyrir fjölskyldunefnd.