Bæjarráð, fundur 864
23. september 2024, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 383 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 23. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2024
Mál 2403158 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júlí og skatttekjur og launakostnaður janúar - ágúst. Einnig samandregið rekstraryfirlit og rekstrarreikningur fyrir janúar - júlí 2024.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Umfjöllun um gjaldskrár Fjarðabyggðar og hækkunarstuðul í gjaldskrám.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskrár sem snúa að barnafjölskyldum hækki að jafnaði um 2,5 % og aðrar gjaldskrár um 5,6%.
-
3. Fjölmenningaráð
Mál 2303056 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að erindisbréfi fyrir fjölmenningarráð.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2024
Mál 2403167 Allur ferill málsins
Framlögð drög að breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna fjölmenningarráðs.
Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
-
5. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Mál 2212036 Allur ferill málsins
Framlögð drög að breytingum á reglum um kjör fulltrúa Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Ágangsfé í landi Áreyja
Mál 2407007 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur landeiganda Áreyja vegna ágangs sauðfjár.
Bæjarráð vísar erindi til bæjarritara til skoðunar.
-
7. Athöfn vegna snjóflóðanna 1974
Mál 2409188 Allur ferill málsins
Fjallað um viðburð til minningar um snjóflóðin 1974.
Vísað til forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra til vinnslu.
-
8. Haustþing SSA 2024
Mál 2409036 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar dagskrá haustþings ásamt drögum að ályktunum sem fjallað verður um á þinginu.
-
9. Aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga
Mál 2409178 Allur ferill málsins
Framlagt boð á aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga miðvikudaginn 9. október ásamt þess að auglýst er eftir framboðum í nýja stjórn.
Bæjarráð felur Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
10. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Mál 2401142 Allur ferill málsins
Fundargerð 951. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
11. Fjölskyldunefnd - 12
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 11.1 Samkomulag um samstarf vegna leigíbúða í búsetukjarna Reyðarfirði2409078
- 11.2 Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla2003044
- 11.3 Öldungaráð - 122408012F
- 11.4 Sprettur -samþætting þjónustu2001250
- 11.5 Kuldaboli 20242404072
- 11.6 Áfallamiðstöð2409092
- 11.7 Fjárhagsáætlunagerð yfirferð gjaldskráa 20242409113
- 11.8 Fjölmenningaráð2303056
- 11.9 Menntaþing 20242409059
-
12. Hafnarstjórn - 316
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 16. september.
- 12.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
- 12.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20252404220
- 12.3 Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa2409069
- 12.4 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20242402056
- 12.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027