Bæjarráð, fundur 863
16. september 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varamaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 862 og 863 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku:Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 16. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 2
Mál 2408121 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga fjármálstjóra að viðauka 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2024.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
2. Samkomulag um samstarf vegna leigíbúða í búsetukjarna Reyðarfirði
Mál 2409078 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að samkomulag við Brák íbúðafélag hses um samstarfi vegna leiguíbúða í búsetukjarna á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
-
3. Trappa
Mál 2408052 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að verkefnið Trappa verði fjármögnuð með viðauka við fjárhagsáætlun 2024.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans. Kostnaði vegna greininga er vísað til fjármálastjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs sem leggi hann að nýju fyrir bæjarráð.
-
4. Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
Mál 2406138 Allur ferill málsins
Vísað frá öldungaráði til bæjarráðs minnisblaði öldungaráðs um þarfagreiningu vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60 ára og eldri.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar fjölskyldunefndar og til uppfærslu húsnæðisáætlunar fyrir næsta ár.
-
5. Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði
Mál 2409108 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Goðaborgar ehf. varðandi lóðina sem frystihúsið á Breiðdalsvík stendur á sem og lóðir og götu í kringum brugghús, kaupfélag, frystihús, borkjarnasafn og gamla kaupfélag. Einnig varðar þetta hönnun og teikningar sem gerðar hafa verið af svæðinu, nefnt "Breiðtorg".
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdanefnd og hafnarstjórnar.
-
6. Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Áreyja
Mál 2409073 Allur ferill málsins
Framlagt erindi innviðaráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru Svavars Valtýs Valtýssonar, þar sem kært er aðgerðarleysi Fjarðabyggðar vegna ágangsfjár í landi Áreyja, Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi innviðaráðuneytisins.
-
7. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Tekin fyrir greining frá verkefnastjóra umhverfismála á ágangi í landi Óseyrar á Stöðvarfirði en staðfest er að fé er á jörðinni.
Bæjarráð skorar á fjáreigendur sem líkindi er til að eigi sauðfé í landi Óseyrar að smala því og veitir hlutaðeigandi andmælafrest.
-
8. Stofna lóð Austurvegur 31
Mál 2408071 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs samningi um lóðina Austurveg 31 á Reyðarfirði.
Bæjarrráð samþykkir lóðasamning fyrir lóðina Austurveg 31.
-
9. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Mál 2409101 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga 2024 þann 9. október nk. kl. 13:00-14:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
10. Ályktanir aðalfundar NAUST 2024
Mál 2409071 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands.
-
11. Sorphirða - Tæming íláta
Mál 2309094 Allur ferill málsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum vegna ítrekaðra raskana á áætlun um sorphirðu af hálfu verktaka. Þessar truflanir hafa valdið óþægindum fyrir íbúa og skapað óásættanlegt ástand varðandi sorphirðu í sveitarfélaginu. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að sorphirða gangi snurðulaust fyrir sig og að verktaki uppfylli þær skyldur sem samningur kveður á um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka tafarlaust upp viðræður við verktaka með það að markmiði að leysa vandann án frekari tafa og tryggja að sorphirða fari fram samkvæmt gildandi áætlun. Viðræður skulu beinast að því að finna raunhæfar lausnir og úrbætur svo að slíkar truflanir endurtaki sig ekki.
Bæjarráð mun fylgjast náið með framvindu mála og kalla eftir reglulegum upplýsingum um stöðu úrbóta.
-
12. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Mál 2403087 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 75
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 15
Framlögð fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. september til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Erindi HAUST2409074
- 13.2 Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði2301057
- 13.3 Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði2406025
- 13.4 Byggingarleyfi Efri-Skálateigur 1b2409032
- 13.5 Byggingarleyfi Brekkugata 13 viðbygging2409011
- 13.6 Byggingarleyfi Borgarnaust 52409045
- 13.7 Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu2408102
- 13.8 Stofna lóð Austurvegur 312408071
- 13.9 Málþing í tilefni af 50 ára afmæli Hringvegarins2408066
- 13.10 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 20252404221
- 13.11 Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 20242404016
- 13.12 Viðarperlukatlar2401059
- 13.13 Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar2409075
- 13.14 Byggingarleyfi Þorgrímsstaðir2409087
- 13.15 Göngu og hjólastígur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar1608031
- 13.16 Framkvæmdaleyfi - Göngu- og hjólastígur frá Sómastöðum að afleggjara austan við álver2409096
-
14. Fjölskyldunefnd - 11
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 9. september tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
- 14.1 Staðan á skólum við upphaf skólaársins 2024-20252408087
- 14.2 leikskóli Breiðdals2405192
- 14.3 Trappa2408052
- 14.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20252404222
- 14.5 Kaup á tölvum fyrir nemendur grunnskólanna2408086
- 14.6 Gjaldfrjálsar skólamáltíðir2407021
- 14.7 Íþróttavika Evrópu 23-30. september 20242405176
- 14.8 Farsældarráð Austurlands2406046
- 14.9 Kuldaboli 20242404072
- 14.10 Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 20242408033
- 14.11 Segulspjöld með útivistareglum2409008
- 14.12 Náttúruskólinn2409019
- 14.13 Skóla-styrkleikar2409020
- 14.14 Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar2405019
- 14.15 Samtal um tónlistarskóla - breytingar til umsagnar2408081
-
15. Stjórn menningarstofu - 8
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. september til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 15.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
- 15.2 Skjalasafn Fjarðabyggðar2409018
- 15.3 Verkefni menningarstofu 20242401039
- 15.4 Skapandi sumarstörf 20242409017
-
16. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 1
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 16. apríl fram lögð og afgreidd.
-
17. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 2
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 2. maí fram lögð og afgreidd.
-
18. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 3
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 23. maí fram lögð og afgreidd.
-
19. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 4
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 12. júní fram lögð og afgreidd.
-
20. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 5
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 19. júní fram lögð og afgreidd.
-
21. Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 6
Framlögð fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja Fjarðabyggðar frá 13. ágúst fram lögð og afgreidd.
-
22. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 1
Framlögð fundargerð starfshóps um breytingar í leikskólum Fjarðabyggðar frá 1. júlí fram lögð og afgreidd.
-
23. Starfshópur um breytingar í leikskólum - 2
Framlögð fundargerð starfshóps um breytingar í leikskólum Fjarðabyggðar frá 12. september fram lögð og afgreidd.
-
24. Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 1
Framlögð fundargerð rýnihóps um breytingar í grunnskólum Fjarðabyggðar frá 1. júlí fram lögð og afgreidd.
-
25. Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 2
Framlögð fundargerð rýnihóps um breytingar í grunnskólum Fjarðabyggðar frá 12. september fram lögð og afgreidd.