NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 15
11. september 2024, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 863 liður 13
Framlögð fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. september til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 3
Fundargerð 15. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 11. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindi HAUST
Mál 2409074 Allur ferill málsins
Kynning og samtal við Heilbrigðiseftilit Austurlands. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar gott samtal við framkvæmdarstjóra HAUST og formann helbrigðisnefndar.
-
2. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
Mál 2301057 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við Grunnskólann á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar fasteigna og framkvæmdarfulltrúa yfirferðina.
-
3. Deiliskipulag Norðfjörður - tjaldsvæði
Mál 2406025 Allur ferill málsins
Athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma vegna tillögu að deiliskipulagi Norðfjörður - tjaldsvæði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd frestar málinu.
-
4. Byggingarleyfi Efri-Skálateigur 1b
Mál 2409032 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Efri-Skálateig 1b. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin fyrir sitt leyti og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Nefndin telur framkvæmdina ekki hafa grenndaráhrif. Skipulags- og framkvæmdanefnd vekur athygli á að í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2024 segir í almennir skilmálum fyrir landbúnaðarsvæði: "Á lögbýlum er heimilt að reisa þrjú íbúðarhús og þrjú frístundahús, sem nýti innviði sameiginlega eins og kostur er, t.d. aðkomuleiðir, veitukerfi o.þ.h. Forðast ber að byggja stök hús á víðavangi."
-
5. Byggingarleyfi Brekkugata 13 viðbygging
Mál 2409011 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Brekkugötu 13, Reyðarfirði og niðurstaða grenndarkynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Niðurstöðu grenndarkynningar er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
-
6. Byggingarleyfi Borgarnaust 5
Mál 2409045 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi Borgarnaust 5. Skipulags- og framkvæmdarnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir í ljósi þess að mannvirkið nær út fyrir byggingarreit.
-
7. Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu
Mál 2408102 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi vegna efnstöku í Skuggahlíðarnámu. Skipulags- og framkvæmdarnefnd frestar málinu þar til umbeðin gögn hafa skilað sér.
-
8. Stofna lóð Austurvegur 31
Mál 2408071 Allur ferill málsins
Stofnun nýrrar lóðar og útgáfa lóðarleigusamnings vegna skráningar Austurvegar 31. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stofnun nýrrar lóðar og vísar erindinu í bæjarráð.
-
9. Málþing í tilefni af 50 ára afmæli Hringvegarins
Mál 2408066 Allur ferill málsins
Málþing í tilefni af 50 ára afmæli Hringvegarins.
-
10. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2025
Mál 2404221 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2025, annars vegar rekstur málaflokka í A hluta og hins vegar rekstur sjóða í A hluta auk síðan yfirlits yfir rekstur sjóða í B hluta. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
-
11. Viðhald og nýframkvæmdir gatna Fjarðabyggð 2024
Mál 2404016 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhalds gatna 2024. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar kynninguna.
-
12. Viðarperlukatlar
Mál 2401059 Allur ferill málsins
Áframhaldandi samtarf við Tandraorku. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar kynninguna.
-
13. Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar
Mál 2409075 Allur ferill málsins
Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar haust 2024. Skipulags- og framkvæmdasvið samþykir fundaáætlunina með fyrirvara um breytingar.
-
14. Byggingarleyfi Þorgrímsstaðir
Mál 2409087 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús að Þorgrímsstöðum, Breiðdal. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir byggingaráform fyrir sitt leyti og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
15. Göngu og hjólastígur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
Mál 1608031 Allur ferill málsins
Tillaga til að hefjast handa við framkvæmdir við göngu- og hjólastíg milli Reyðdarfjarðar og Eskifjarðar. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
16. Framkvæmdaleyfi - Göngu- og hjólastígur frá Sómastöðum að afleggjara austan við álver
Mál 2409096 Allur ferill málsins
Umsókn um framkvæmdarleyfi við gerð göngu- og hjólastígs milli Sómastaða og afleggjara austan við álver. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir gerð göngu- og hjólastígs milli Sómastaða og afleggjara austan við álver og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Framkvæmdin er samkvæmt aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040.