NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 14
21. ágúst 2024, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 860 liður 10
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. ágúst fram lögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 381 liður 3
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Engin tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. ágúst er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Byggingarleyfi Heiðarvegur 11 bílskúr
Mál 2407040 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Heiðarvegur 11 endurbygging bílskúrs. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
2. Byggingarleyfi Móbakki 16
Mál 2406117 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Móbakki 16. Grenndarkynningu lokið. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað og vísar erindinu í bæjarráð.
-
3. Byggingarleyfi Búðareyri 25
Mál 2408038 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Búðareyri 25. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
4. Umsókn um byggingarleyfi Búðareyri 29
Mál 2407070 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir starfsmannaíbúðir og bíslag á iðnaðarsvæði við Búðareyri 29. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tímabundnar starfsmanna íbúðir til tveggja ára með möguleika á endurnýjun fyrir Búðareyri 29b.
-
5. Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita
Mál 2402003 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar samantekt fjármálastjóra á fjárhagslegurm áhrifum skerðingar á kaupum á raforku til fjarvarmaveita janúar - maí 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
6. Beiðni um umsögn vegna starfsleyfisumsóknar - Efnismóttaka og landfylling Mjóeyrarhöfn
Mál 2407053 Allur ferill málsins
Beiðni um umsögn vegna starfsleyfisumsóknar - Efnismóttaka og landfylling Mjóeyrarhöfn. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur þegar veitt jákvæða umsögn.
-
7. Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði
Mál 2302013 Allur ferill málsins
Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna í auglýsingu.
-
8. Ársskýrsla HAUST 2024
Mál 2408002 Allur ferill málsins
Ársskýrsla HAUST 2024. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðstjóra að boða fulltrúa Haust á næsta fund skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
9. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 28.
Mál 2407095 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 28. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umbeðinni stækkun þar sem hún fer að hluta út fyrir þéttbýlismörk. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að svara öðrum spurningum umsækjanda sem fram koma í bréfinu.
-
10. Tilfærsla á lóðarmörkum Búðareyri 10
Mál 2405120 Allur ferill málsins
Tilfærsla á lóðarmörkum við Búðareyri 10 um 7,5m til vesturs. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tilfærsluna fyrir sitt leyti og vísar erindinu í bæjarráð.