Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 860

26. ágúst 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 381 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 860 og 861 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku:Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerðir bæjarráðs frá 26. ágúst og 2. september eru samþykktar með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2024

    Mál 2403158 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júní 2024 auk yfirlits yfir skatttekjur og launakostnað janúar - júlí 2024. Einnig lagt fram samandregið yfirlit yfir reksturinn fyrstu 6 mánuði ársins.

  2. 2. Árshlutareikningur Fjarðabyggðar og stofnana 30.6. 2024

    Mál 2408088 Allur ferill málsins

    Lagður fram árshlutareikningur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2024. Árshlutareikningurinn er án endurskoðunnar og tekur mið af stöðu bókhalds 30.6. júní 2024.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar og undibúnings úthlutnar ramma fyrir árið 2025.

    Bæjarráð samþykkir forsendur að tillögum um rammaúthlutun fyrir deildir og svið fyrir árið 2025. Úthlutun ramma tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  4. 4. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlagt svar landeigenda að Óseyri í Stöðvarfirði vegna afgreiðslu erindis þeirra um ágangsfé í landi þeirra.

    Bæjarráð samþykkir að haft verði samband við fjáreigendur sem líkindi eru til að eigi féð og þeim gefinn kostur á að smala féð og þeim veittur andmælafrestur.

  5. 5. Ágangsfé í landi Áreyja

    Mál 2407007 Allur ferill málsins

    Fjallað um ágang sauðfjár í landi Áreyja í framhaldi af samþykkt bæjarráðs frá 12. ágúst.

    Búið er að ræða við hlutaðeigandi aðila og beðið viðbragða. Frestað til næsta fundar bæjarráðs.

  6. 6. Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Óseyrar

    Mál 2408089 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi innviðaráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.

    Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi ráðuneytisins.

  7. 7. Byggingarleyfi Búðareyri 10

    Mál 2405120 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að tilfærslu á lóðarmörkum við Búðareyri 10 á Reyðarfirði um 7,5m til vesturs en lóðin mun stækka sem því nemur.

    Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar og felur skipulagsfulltrúa að kynnt nálægum fasteignaeigendum.

  8. 8. Endurnýjun körfubíls

    Mál 2408096 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra um endurnýjun á körfbíl slökkviliðs en hann er frá árinu 1991 og er fyrirliggjandi viðhald á bílnum sem óvissa er um hversu mikil yrði.

    Bæjarráð samþykkir að gert verði tilboð í körfubíl.

  9. 9. Stjórnkerfisnefnd 2020-2024

    Mál 2011203 Allur ferill málsins

    Fjallað um stjórnkerfi Fjarðabyggðar.

  10. 10. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. ágúst fram lögð til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Byggingarleyfi Heiðarvegur 11 bílskúr2407040
    2. 10.2 Byggingarleyfi Móbakki 162406117
    3. 10.3 Byggingarleyfi Búðareyri 252408038
    4. 10.4 Umsókn um byggingarleyfi Búðareyri 292407070
    5. 10.5 Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita2402003
    6. 10.6 Beiðni um umsögn vegna starfsleyfisumsóknar - Efnismóttaka og landfylling Mjóeyrarhöfn2407053
    7. 10.7 Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði2302013
    8. 10.8 Ársskýrsla HAUST 20242408002
    9. 10.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 28.2407095
    10. 10.10 Tilfærsla á lóðarmörkum Búðareyri 102405120