Bæjarráð, fundur 861
2. september 2024, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 381 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku:Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerðir bæjarráðs frá 26. ágúst og 2. september eru samþykktar með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Fundur með forstjóra og upplýsingafulltrúa Alcoa
Mál 2203087 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni Alcoa Fjarðaáls.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Mál 2404213 Allur ferill málsins
Tekin fyrir úthlutun á fjárhagsrömmum fyrir málaflokka og svið Fjarðabyggðar vegna ársins 2025.
Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsramma áætlunar 2025 og felur
fjármálastjóra að gefa þá út til nefnda.
-
3. Veikindalaun 2024
Mál 2408127 Allur ferill málsins
Lögð fram greining fjármálastjóra á kostnaði við veikindalaun fyrstu sex mánuði ársins ásamt tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024.
Bæjarráð samþykkir að vísa kostnaði vegna veikindalauna til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2024. Fjármálastjóra falið að setja fram viðaukann.
-
4. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Mál 2306063 Allur ferill málsins
Framlagðar nýjar beiðnir landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun sauðfjár sem er á jörðinni ásamt afriti af tölvupóstum sem sendir hafa verið á fjáreigendur sem líkindi eru til að eigi sauðfé sem um ræðir. Andmælafrestur er til 3. september en andmæli hafa ekki borist.
-
5. Ágangsfé í landi Áreyja
Mál 2407007 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju erindi landeiganda Áreyja vegna ágangs sauðfjár á jörðinni. Fjáreigandi brást við og smalaði áreyrar sem ágangur sauðfjár hefur verið á. Jafnframt lögð fram ný kvörtun um ágang.
Bæjarráð felur bæjarritara að hafa samband við hlutaðeigandi fjáreiganda.
-
6. Drög að flokkun fimm virkjunarkosta
Mál 2406060 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsögn Fjarðabyggðar í síðara umsagnarferli vegna mats á Hamarsvirkjun sem virkjanakosts en tillaga verkefnastjórnar er að virkjunin fari í verndarflokk.
Jón Björn Hákonarson vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarritara að skila henni í samráðsgátt.
-
7. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2025
Mál 2408135 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir afnotum af íþróttahúsinu á Norðfirði vegna tæknidags fjölskyldunnar.
Bæjarráð samþykkir að styrkja tæknidaginn sem nemur afnotum af íþróttahúsinu á Norðfirði, tekið af liðnum óráðstafað.
-
8. Starfsemi Ilms
Mál 2406071 Allur ferill málsins
Framlögð drög viljayfirlýsingar vegna áforma TandraOrku ehf. um uppbyggingu verksmiðju sem framleiðir lífkol.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur bæjarritara að undirrita hana.
-
9. Málefni Sköpunarmiðstöðvar
Mál 2404200 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar og framtíða hennar ásamt tillögu um að Austurbrú og Fjarðabyggð skipi fulltrúa í stjórn hennar.
Bæjarráð vísar erindi til stjórnar menningarstofu.
-
10. Styrkveitingar til starfa án staðsetningar
Mál 2408145 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar auglýsing innviðaráðuneytisins um styrkveitingar til ríkisstofnana vegna óstaðbundinna starfa.
Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að taka saman yfirlit yfir innviði sem nýst geta ef stofnanir flytja starfsemi í sveitarfélaginu og koma því framfæri.
-
11. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Mál 2205170 Allur ferill málsins
Framsóknarflokkurinn tilkynnir um nefndabreytingar. Tinna Hrönn Smáradóttir tekur sæti Birgis Jónssonar í fjölskyldunefnd. Jafnframt tekur Pálína Margeirsdóttir sæti varaformanns.
-
12. Stjórnkerfisnefnd 2020-2024
Mál 2011203 Allur ferill málsins
Farið yfir stjórnkerfi Fjarðabyggðar