Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 859

19. ágúst 2024, kl. 09:00 til 12:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 380 liður 1

    Engin tók til máls.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skipulags- og framkvæmdasvið verkefni 2024

    Mál 2403234 Allur ferill málsins

    Farið yfir framvindu verkefna framkvæmda- og umhverfissvið.

  2. 2. Fjölskyldusvið verkefni 2024

    Mál 2404009 Allur ferill málsins

    Farið yfir verkefni fjölskyldusviðs.

  3. 3. Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði

    Mál 2306063 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni landeigenda Óseyrar í Stöðvarfirði um smölun sauðfjár af landinu.

    Vísað til bæjarritara til úrvinnslu.

  4. 4. Beiðni um viðbótarframlag 2024

    Mál 2408040 Allur ferill málsins

    Beiðni um viðbótarframlag vegna reksturs Héraðsskjalasafns Austurlands fyrir árið 2024.

    Vísað til stjórnar menningarstofu.

  5. 5. Íbúafundur vegna uppbyggingar snjóflóðavarnargarða í Neskaupstað

    Mál 2408041 Allur ferill málsins

    Fjallað um undirbúning íbúafundar í Neskaupstað vegna byggingar snjóflóðavarnargarða.

    Bæjarráð hefur boðað til íbúafundar í Nesskóla miðvikudaginn 4. september nk. kl. 17:00. Farið verður yfir framkvæmdir við ofanflóðavarnir í Nes- og Bakkagiljum.

  6. 6. Húsnæðisáætlun 2025

    Mál 2408042 Allur ferill málsins

    Umræða til að hefja formlega vinnu við gerð húsnæðisáætlunar fyrir árið 2025 sem tekur við af þeirri sem er í gildi.

  7. 7. Málefni Skólavegar 98-112

    Mál 2408047 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Íbúsamtaka Fáskrúðsfjarðar vegna Skólavegar 98-112 á Fáskrúðsfirði.

    Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.

  8. 8. Kvennsöguskilti

    Mál 2408039 Allur ferill málsins

    Framlag erindi frá Sambandi austfirskra kvenna um hugmynd að stuðla að kvennsöguskiltum víðsvegar á Austurlandi.

    Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vera tengiliður vegna verkefnisins.

  9. 9. Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð

    Mál 2404177 Allur ferill málsins

    Framlögð sem trúnaðarmál drög að samningi vegna þróunar hugbúnaðar vegna úrgangs.

    Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið umhald málsins ásamt starfshópi og starfsfólki málaflokksins.

  10. 10. Styrkur til FHL vegna árangurs

    Mál 2408049 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir í ljósi góðs árangurs FHL sem tryggt hafa sér sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili að veita liðinu afreksstyrk. Jafnframt mun bæjarstjórn bjóða liðinu í móttöku næstkomandi laugardag þar sem styrkurinn verði afhentur.

  11. 11. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 13

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. júlí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 11.1 Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði2301057
    2. 11.2 Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2405143
    3. 11.3 Skýrsla vegna umhverfismála á Fáskrúðsfirði2406133
    4. 11.4 Umferðarþing2406134
    5. 11.5 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    6. 11.6 Umsókn um stöðuleyfi2407008
    7. 11.7 Erindi frá Ferðaþjónustu á Fossárdal2407020
    8. 11.8 Byggingarleyfi Hlíðargata 45 bíslag2407051