Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 858

12. ágúst 2024, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 380 liður 7

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Skólabyrjun skólaárið 2024 - 2025

    Mál 2408013 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála- og skólaþjónustu mætir á fundinn og fer yfir stöðu mála við upphaf skólaárs 2024 - 2025.

  2. 2. Framlenging á samningi um akstur á leið 92 (Breiðdalur-Reyðarfjörður)

    Mál 2407127 Allur ferill málsins

    Lagður fram samnngur við Vegagerðina um framlengingu á samningi um akstur á leið 92 á milli Breiðdals og Reyðarfjarðar. Aksturinn er framkvæmdur innan almenningssamgangna Fjarðabyggðar og skapar tekjur af akstrinum en ekki kostnað. Upphaflega yfirtók Fjarðabyggð akstur á leiðinni af SvAust í kjölfar útboðs á leiðinni. Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn og felur bæjarstjóra undirritun skjala því tengdu.

  3. 3. Minnisblað frá KÍ í kjölfar heimsóknar til Fjarðabyggðar

    Mál 2309181 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað Kennarasambands Íslands frá 8. júlí 2024 um aðkomu og heimsóknir sambandsins í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi í Fjarðabyggð.

  4. 4. Ráðning sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs

    Mál 2408012 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarstjóra varðandi ráðningu í starf sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs. Bæjarráð samþykkir þá tillögu bæjarstjóra að Jóhann Gunnsteinn Harðarson verði ráðinn í starf sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs.

  5. 5. Beiðni um umsögn vegna tilraunaleyfis til skelræktar.

    Mál 2406068 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að umsögn vegna erindis Matvælastofnunar þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar Norhtlight Seafood ehf. um nýtt tilraunaleyfi til skeldýraræktunar á Bláskel í Norðfjarðarflóa. Sviðsstjóra mannauðs- og umbótamála falið að vinna málið áfram.

  6. 6. Drög að flokkun fimm virkjunarkosta

    Mál 2406060 Allur ferill málsins

    Óskað hefur verið eftir umsögnum vegna mats á Hamarsvirkjun í fimmta áfanga rammaáætlunar. Bæjarritara falið að rita drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  7. 7. Leikskólapláss

    Mál 2407104 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá 8. júlí vegna stöðu mála varðandi leikskólapláss á Reyðarfirði. Bæjarstjóri hefur þegar svarað erindinu en unnið er að mönnun skólastofnanna í Fjarðabyggð.

  8. 8. Ágangsfé í landi Áreyja

    Mál 2407007 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur landeiganda í Áreyjum frá 26. júlí sl. vegna ágangsfjár. Bæjarritara falið að fylgja erindinu eftir í samræmi við fyrri afgreiðslur bæjarráðs.

  9. 9. Starfsemi Ilms

    Mál 2406071 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál erindi frá Tandraorku í kjölfar fundar fyrirtækisins með bæjarráði í lok júní sl. Bæjarstjóra falið að hefja viðræður við fyrirtækið.

  10. 10. Helstu tölur lögreglu fyrstu sex mánuði ársins 2024

    Mál 2407142 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar yfirlit frá lögreglunni á Austulandi yfir fyrstu sex mánuði ársins 2024

  11. 11. Hættumat fyrir ofanflóð í Stöðvarfirði

    Mál 2306138 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar staðfesting ráðuneytisins á þegar kynntu hættumati fyrir ofanfóð á Stöðvarfirði, engar breytingar hafa orðið á matinu frá fyrri kynningu.

  12. 12. Framlengdur samningur við Tanna Travel vegna skólaaksturs

    Mál 2408001 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað stjóranda fræðslumála- og skólaþjónustu vegna framlengingar á samningi vegna skólaaksturs. Stjórnanda fræðslumála falið að ljúka framlengingu á samningum og bæjarstjóra undirritun þeirra í framhaldi af því.

  13. 13. Tilboð um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara

    Mál 2407009 Allur ferill málsins

    Framlögð bréf og tölvupóstar frá fyrirtækjum vegna tilboða til að ljúka lagningu ljósleiðara. Bæjarstjóra og bæjarritara falið að ræða við tilboðsgjafa og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð að nýju. Jafnframt er bæjarstjóra falið að svara Fjarskipasjóði og staðfesta þátttöku Fjarðabyggðar í verkefninu.

  14. 14. Leyfi fyrir tjaldsvæði að Svarthömrum í Neskaupstað

    Mál 2408014 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Marvins Ómarssonar þar sem óskað er leyfis til uppsetningar og reksturs tjaldsvæðis að Svarthömrum í Neskaupstað. Sviðsstjóra framkvæmda- og skipulagssviðs falið að ræða við bréfritara.

  15. 15. Erindi frá Hestamannafélaginu Blæ vegna deiliskipulags

    Mál 2408023 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Hestamannafélaginu Blæ vegna deiliskipulags á svæði félagsins í Fannardal. Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur bæjarritara að skoða feril málsins og áframhaldandi vinnu í kjölfarið á því.