Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 857

22. júlí 2024, kl. 08:30 til 10:10, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 380 liður 6

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2024

    Mál 2403158 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - maí 2024 auk yfirlits yfir skatttekjur og launakostnað janúar - júní 2024. Einnig lagt fram samadregið yfirlit yfir reksturinn fyrstu 5 mánuði ársins.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2404213 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um gjaldskrár ársins 2025 og forsendur í nýrri þjóðhagsspá sem birt var í sumar. Vísað til frekari umræðu í tengslum við fjárhagsáætlun 2025.

  3. 3. Samningur við Orkusöluna um breytingu á viðskiptakjörum

    Mál 2407033 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samningi Orkusölunnar og Fjarðabyggðar um breytingu á viðskiptakjörum Fjarðabyggðar fram til ársloka 31.12.2026.

    Bæjarráð samþykkir samninginn ásamt samningum fyrir Fjarabyggðahafnir og Hitaveitu Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  4. 4. Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita

    Mál 2402003 Allur ferill málsins

    Lögð fram samantekt fjármálastjóra á auknum orkukostnaði vegna skerðingar á raforku til fjarvarmaveita janúar - maí 2024 ásamt tillögu um breytingar á fjárhagsáætlun ársins.

    Bæjarráð vísar auknum orkukostnaði vegna skerðingar á raforku til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024. Bæjarráð samþykkir jafnframt að viðræður verði teknar upp við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið varðandi rekstur fjarvarmaveitna.

  5. 5. Hleðslustöðvar gjaldskrá og samningur um þjónustu

    Mál 2310060 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að gjaldskrá fyrir selda raforku í gegnum rafhleðslustöðvar Fjarðabyggðar ásamt drögum að samningi við EONE ehf. um afnot af hugbúnaðarlausn fyrirtækisins til aðgangsstýringar að stöðvunum og innheimtu gjalda.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá sem taki gildi frá og með 1. ágúst 2024 ásamt samningi um þjónustu vegna stöðvanna við Eone ehf. Bæjarstjóra falið að undirrita gjaldskrá og samning.

  6. 6. Tilboð um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara

    Mál 2407009 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju erindi frá Fjarskiptasjóði þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli. Frekari upplýsingar sjóðsins um framkvæmd og útfærslur rædd.

    Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar gegn styrk frá Fjarskiptasjóði sbr. auglýsingu háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/07/02/Ljosleidaravaeding-landsins-klarist-innan-thriggja-ara/

  7. 7. Ágangsfé í landi Áreyja

    Mál 2407007 Allur ferill málsins

    Framlagt mat verkefnastjóra umhverfismála á ágangi sauðfjár í landi Áreyja.

    Bæjarráð felur bæjarritara að ræða við landeigendur og upplýsa um niðurstöðu mats verkefnastjóra umhverfismála.

  8. 8. Franskir dagar 2024

    Mál 2209245 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að dagskrá vegna heimsóknar fulltrúa vinabæjarins Gravelines ásamt yfirliti um fulltrúana.

    Bæjarfulltrúar taka þátt í mótttöku fulltrúa vinabæjarins í samvinnu við upplýsingafulltrúa.

  9. 9. Ráðstefna Almannavarna 2024

    Mál 2407002 Allur ferill málsins

    Framlagt boð frá Almannavarnarsviði ríkislögreglustjóra um almannavarnarráðstefnu sem haldinn verður 31. október 2024.

    Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson fari fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  10. 10. Erindi vegna úrskurðar í máli nr. IRN23111065

    Mál 2407086 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá innviðaráðuneyti þar sem óskað er upplýsinga um viðbrögð við úrskurði ráðuneytisins frá 18. apríl 2023 varðandi smölun ágangsfjár. Lögð fram drög að svari.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og felur bæjarritara að svara erindi ráðuneytisins.

  11. 11. Erindi vegna ágangsmála búfjár

    Mál 2407066 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar samantekt forráðamanna fésbókarsíðu um ágangsmál búfjár.

  12. 12. Drög að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla - Umsagnarferli

    Mál 2407085 Allur ferill málsins

    Á Samráðsgátt liggja fyrir drög að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla. Umsagnarfrestur er til 15.ágúst næstkomandi.

    Bæjarráð felur hafnarstjóra í samráði við hafnarstjórn að yfirfara drögin og veita umsögn vegna málsins.

  13. 13. Skipun stýrihóps vegna breytinga á eftirliti

    Mál 2407092 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf frá Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi vegna áformaðra breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem eru viðamiklar.

  14. 14. Drög að flokkun fimm virkjunarkosta

    Mál 2406060 Allur ferill málsins

    Í samráðsgátt stjórnvalda er að nýju komin til samráðs drög að flokkun fimm vikjanakosta þar á meðal Hamarsvirkjun sem þegar hefur verið veitt umsögnum um.

    https://island.is/samradsgatt/mal/3778. Umsagnarfrestur er til 27. september nk.

    Bæjarráð mun taka málið fyrir að nýju áður en umsagnarfresti lýkur.

  15. 15. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024

    Mál 2403087 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð samtaka orkusveitarfélaga nr. 73