Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 856

8. júlí 2024, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 380 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Tilboð um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara

    Mál 2407009 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Fjarskiptasjóði þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli.

    Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum sjóðsins fyrir næsta fund til að taka afstöðu til erindisins.

  2. 2. Rafrænar greiðslubeiðnir og rafræn innkaupakort

    Mál 2406115 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga um innleiðingu á rafrænu greiðslubeinakerfi fyrir Fjarðabyggð til að stýra innkaupum sveitarfélagsins með skilvirkum hætti.

    Bæjarráð samþykkir að innleitt verði rafrænt greiðslubeiðnakerfi og felur fjármálastjóra útfærslu innleiðingar í samstarfi við stjórnendur sveitarfélagsins.

  3. 3. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

    Mál 2407021 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíð í grunnskólum.

    Vísað til stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu.

  4. 4. Barnavernd Fjarðabyggðar stöðugilda aukning um 0.8

    Mál 2407011 Allur ferill málsins

    Framlagt innra vinnuskjal sviðstjóra fjölskyldusviðs um stöðu barnaverndar og aukið stöðugildi í málaflokknum.

    Bæjarráð samþykkir aukið stöðugildi í málaflokknum sem nemur 0,8 hlutfalli og vísar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024.

  5. 5. Sólarsellustyrkir

    Mál 2407022 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Orkusetri Orkustofnunar sem auglýsir nú um þessar mundir styrki til kaupa á sólarsellum.

  6. 6. Ágangsfé í landi Áreyja

    Mál 2407007 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur landeiganda í Áreyjum varðandi ágang sauðfjár í landi jarðarinnar.

    Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að kanna ágang í landi jarðar með tilliti til leiðbeininga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um ágang þegar lausaganga búfjár er heimil og leggja fyrir bæjarráð upplýsingar þar um.

  7. 7. Íslendingadagar 27. -30. sept. 2024

    Mál 2406011 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga forseta bæjarstjórnar að skipan fulltrúa Fjarðabyggðar á Íslandsdögum 27. til 30. september nk.

    Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs fer fyrir hönd bæjarstjórnar og Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir starfsmaður fyrir hönd Franska safnsins ásamt fulltrúa Franskra daga.

  8. 8. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerðir frá ársfundi Austurbrúar og aðafundi SSA 2024 lagðar fram til kynningar.

  9. 9. Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024

    Mál 2401142 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

  10. 10. Fundargerðir Austurbrúar og SSA

    Mál 2311224 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórna Austurbrúar og SSA lagðar fram til kynningar