NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 13
10. júlí 2024, kl. 16:00 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 859 liður 11
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. júlí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 380 liður 2
Engin tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 10. júlí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
Mál 2301057 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
2. Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2405143 Allur ferill málsins
Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllu tilskildum gögnum hefur verið skilað. Meðal gagna skal vera undirritaður samningur milli Fjarðabyggðarhafna og Eimskips um að byggingin sé víkjandi og Fjarðabyggðarhafnir áskili sér rétt á að byggingin verði fjarlægð án þess að kostnaður falli á Fjarðabyggðarhafnir.
-
3. Skýrsla vegna umhverfismála á Fáskrúðsfirði
Mál 2406133 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar ítarlega og greinargóða skýrslu er varðar úrbætur á umhverfismálum á Fáskrúðsfirði. Nefndin felur sviðsstjóra að fara í þær úrbætur sem hægt er eins fljótt og unnt er í samráði við garðyrkjustjóra og annað starfsfólk sviðssins.
-
4. Umferðarþing
Mál 2406134 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og hefur áhuga að senda fulltrúa á umferðaþingið.
-
5. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til tvær staðsetningar að fjárrétt í Norðfirði og er fjallskilastjóra ásamt skipulagsfulltrúa falið að ræða við þá sem málið kann að varða.
-
6. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2407008 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám í bílastæðinu við Hlíðargötu 43 í 4 mánuði vegna flutninga. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðni um stöðuleyfi á bílastæði við Hlíðargötu og vísar umsækjanda á gámasvæðið á Fáskrúðsfirði.
-
7. Erindi frá Ferðaþjónustu á Fossárdal
Mál 2407020 Allur ferill málsins
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið en telur það eiga heima hjá bæjarráði og vísar því þangað.
-
8. Byggingarleyfi Hlíðargata 45 bíslag
Mál 2407051 Allur ferill málsins
Byggingarleyfi Hlíðargata 45 bíslag. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.