Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2024

leikskóli Breiðdals

Mál 2405192 Fyrst á dagskrá 10. júní 2024, síðast 19. september 2024. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fjölskyldunefnd.

Í heiti málsins: Breiðdalsvík og BreiðdalurSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2024

    Fjölskyldunefnd, fundur 10 liður 1

    Skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla fór yfir samantekt skólaráðs Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla um mögulega stækkun leikskólans Ástúns vegna væntanlegrar fjölgunar barna í leikskólanum. Fjölskyldunefnd samþykkir að vinna útfrá tillögu 5 sem snýr að tilfærslu leikskólans. Nefndin felur sviðsstjóra Fjölskyldusviðs að funda með dagvist eldri borgara varðandi tillöguna og kalla eftir athugasemdum. Málið tekið fyrir að nýju þegar samráðið hefur farið fram.

  2. Fjölskyldunefnd, fundur 11 liður 2

    Fjölskyldunefnd leggur til að húsnæði leikskólans verði stækkað inn í núverandi húsnæði bókasafnsins enda er það einföld og hagkvæm aðgerð. Metið verði með skólastjóra og forstöðumanni bókasafnsins hvort ekki sé hægt að nýta betur húsnæði bókasafnins sem eftir stendur með það að sjónarmiði að þjónusta þess verði áfram sú sama við nemendur og íbúa Breiðdals. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar á skipulags- og framkvæmdasviði. Jafnframt verður unnið að útfærslu varðandi skjólsæld við skólann.

  3. Bæjarráð, fundur 863 liður 14.2

    Fundargerðin „Fjölskyldunefnd - 11“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 382 liður 4.2

    Fundargerðin „Fjölskyldunefnd - 11“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is