Stjórn menningarstofu, fundur 8
10. september 2024, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 863 liður 15
Framlögð fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. september til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 382 liður 7
Fundargerðir stjórnar menningarstofu nr. 7 og 8 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók: Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Málefni Íslenska stríðsárasafnsins tekin fyrir að nýju. Kynning á drögum að útfærslu á lóð safnsins.
Stjórn vísar tillögum til áframhaldandi vinnu og verður tekið fyrir á næsta fundi.
-
2. Skjalasafn Fjarðabyggðar
Mál 2409018 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu endurgerðar Lúðvíkshúss og hlutverk þess sem framtíðarskjalasafns Fjarðabyggðar og Skjala- og myndasafns Norðfjarðar.
-
3. Verkefni menningarstofu 2024
Mál 2401039 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu fór yfir menningar- og listahátína Innsævi og árangur hátíðarinnar. Rætt um verkefnið sumarsins.
Stjórn menningarstofu lýsir ánægju sinni með gott og árangursríkt menningar- og listastarf í sumar og vel heppnað Innsævi.
-
4. Skapandi sumarstörf 2024
Mál 2409017 Allur ferill málsins
Lögð fram skýrsla Marc Alexander um störf skapandi sumarstarfa 2024.
Stjórnin þakkar greinargóða skýrslu og lýsir ánægju sinni með skapandi sumarstörf og góðan árangur þeirra.