Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 9

23. september 2024, kl. 14:00 til 16:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 865 liður 18

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. september.

  • Bæjarstjórn, fundur 383 liður 7

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Fjallað um skipulag lóðar Íslenska stríðsárasafnsins og framtíðaruppbyggingu þess. Framlagðar þrjár tillögur að skipulagi lóðarinnar sem stjórnin vann með til útfærslu.

    Stjórn fór yfir tillögur og gerði breytingar á tillögu A sem óskað verður eftir að arkitekt útfæri nánar í samræmi við áherslur stjórnarinnar.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025

    Mál 2404223 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur næsta árs og áherslur í starfsemi auk viðhaldsverkefna. Rætt um fyrirkomulag bæjarhátíða í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnuna.

  3. 3. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025

    Mál 2409157 Allur ferill málsins

    Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá safna samhliða fjárhagsáætlunargerð 2025 vegna gjaldskrár 2026.

    Nefndin fór yfir forsendur gjaldskráa safna og felur bæjarritara að vinna að útfærslu með forstöðumanni og leggja fyrir næsta fund.

  4. 4. Gjaldskrá félagsheimila 2025

    Mál 2409129 Allur ferill málsins

    Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð 2025.

    Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 5,6% samkvæmt samþykkt bæjarráðs og vísar afgreiðslu til bæjarráðs.

  5. 5. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024

    Mál 2402237 Allur ferill málsins

    Framlögð skýrsla verkefnastjóra menningarstofu um starfsemi minjasafna árið 2024 ásamt tölum um aðsókn að söfnunum.

    Stjórn þakkar greinargóða samantekt. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2025 en aðsókn hefur dregist saman. Stjórn mun fjalla frekar um málefni safna.