Stjórn menningarstofu, fundur 10
7. október 2024, kl. 14:00 til 15:35, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
- Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
- Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 867 liður 9
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 7. október.
Bæjarstjórn, fundur 384 liður 6
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 7. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025
Mál 2404223 Allur ferill málsins
Drög að fjárhagsáætlun menningarmálaflokksins 2025 framlögð.
Stjórn menningarstofu vísar fjárhags- og starfsáætlun menningarmála til bæjarráðs.
-
2. Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 2026
Mál 2409157 Allur ferill málsins
Nefndin fór yfir forsendur gjaldskráa safna 2026 að nýju.
Stjórnin samþykkir fyrirliggjandi breytingar á gjaldskrá fyrir árið 2026 og hækkar gjaldskrá til samræmis við markmið. Jafnframt samþykkir stjórn að ákvæði vegna opnunar utan hefðbundins opnunartíma taki gildi frá og með 1. janúar 2025 og gjaldskrá 2025 taki breytingum sem því nemur.
-
3. Uppbyggingarsjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar
Mál 2410027 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni á árinu 2025 sem verður sótt um í Uppbyggingarsjóð Austurlands.
Stjórnin felur starfsmönnum að vinna að umsóknum áfram.
-
4. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mál 2206071 Allur ferill málsins
Framhald vinnu við útfærslu á lóð og húsnæði Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.
Stjórn vísar til kynningar og athugasemda tillögu að útfærslu á skipulagi lóðar Íslenska stríðsárasafnsins til ungmennaráðs og öldungarráðs.
-
5. Fjárbeiðni 2024
Mál 2410032 Allur ferill málsins
Framlagt að nýju erindi frá Héraðsskjalasafni Austurlands þar sem fjallað er um framlög til reksturs safnsins frá aðildarsveitarfélögum.
Stjórn menningarstofu samþykkir að veita viðbótarframlag til reksturs Héraðsskjalasafns Austfirðinga á árinu 2024 sem nemur beiðni. Mætt af rekstri menningarmálaflokksins. Hvað varðar viðbótarframlag næsta árs er því vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2025 og bæjarráðs.
-
6. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
Mál 2402237 Allur ferill málsins
Farið yfir málefni minjasafna og stöðu þeirra. Fyrir liggur að skilgreina þarf stefnu safna í Fjarðabyggð og markmið rekstrar þeirra. Skil á árskýrslu viðurkenndra safna er til 24. október 2024 og lokafrestur til að sækja um í safnasjóð er til 6. nóvember.
Stjórn felur formanni og bæjarritara að vinna að málinu og koma með á næsta fundi.