Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 11

11. nóvember 2024, kl. 14:00 til 15:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 872 liður 8

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. nóvember.

  • Bæjarstjórn, fundur 387 liður 6

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Birgir Jónsson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Vísað frá öldungaráði til stjórn menningarstofu til kynningar á niðurstöðu og athugasemdum ráðsins að útfærslu á skipulagi lóðar og húsnæðis Íslenska stríðsárasafnsins. Jafnframt rætt um áfangaskiptingu uppbyggingar safnsins og kostnað þess.

    Stjórn fór yfir drög að áfangaskiptingu framkvæmda og óskar eftir upplýsingum um kostnað við áfanga framkvæmdanna auk þess að fá tilboð í gerð bogaskemma sem áformað er að reisa að svæðinu.

  2. 2. Safnasjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar

    Mál 2411048 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri menningarmála kynnti þrjár umsóknir um styrki í safnasjóð sem unnar hafa verið og sótt hefur verið um í sjóðinn frá Sjóminjasafni Austurlands í samstarfi við söfnin í Fjarðabyggð. Jafnframt greint frá umsóknum í uppbyggingarsjóð.

  3. 3. Verkefni menningarstofu 2024

    Mál 2401039 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður fór yfir verkefni sem eru á döfinni næstu misseri ásamt þeim verkefnum sem unnið hefur verið að síðustu vikur. Dagskráin næstu vikur og fram að jólum er að mótast og verður mikið af viðburðum á vegum menningarstofunnar sem verður fjölbreytt.

    Stjórnin fagnar viðburðarríkri dagskrá sem er framundan og ánægju með viðburði haustsins.

  4. 4. Erindi varðandi styrk til fornleifarannsókna í Stöðvarfirði

    Mál 2402019 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til stjórnar menningarstofu beiðni Félags um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um fjárstuðning á árinu 2025. Stjórn hefur lagt til óbreytt framlag á árinu 2025 til framhalds rannsóknanna.