Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 12

9. desember 2024, kl. 14:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 875 liður 13

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. desember.

  • Bæjarstjórn, fundur 389 liður 6

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Elís Pétur Elísson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 9. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Verkefni menningarstofu 2024

    Mál 2401039 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður fór yfir verkefni liðinna mánaða og það sem helst er á döfinni framundan.

    Stjórn þakkar samantektina og hvetur til þess að fjallað sé um viðburðina enn frekar á vettvangi sveitarfélagsins þar sem mikill fjöldi viðburða er í mánuði hverjum á vegum menningarstofu.

  2. 2. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 2211009 Allur ferill málsins

    Farið yfir stefnur í menningar- og listalífi. Menningarstefnan bíður endurskoðunar. Tekin umræða um áherslur og strauma á næsta ári og gerð nýrrar stefnu.

    Forstöðumanni falið að útfæra vinnu við endurskoðun stefnunnar í upphafi nýs árs og leggja fyrir stjórnina.

  3. 3. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024

    Mál 2402237 Allur ferill málsins

    Árni Pétur Árnason hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri safna hjá Menningarstofu. Áhersluverkefni næsta árs í söfnum ásamt hugmyndum um umbætur í þjónustu og nýsköpun í rekstri þeirra rædd.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur ársins 2024 og stöðu málaflokksins.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025

    Mál 2404223 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í starfsemi málaflokksins á komandi ári og fjármögnun verkefna.

  6. 6. Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029

    Mál 2412033 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar drög að sóknaráætlun Austurlands en hún er til kynningar og umsagnar í samráðsgátt og verður til 12. desember nk.