Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 13

3. febrúar 2025, kl. 12:00 til 13:30, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 882 liður 11

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 3. febrúar

  • Bæjarstjórn, fundur 392 liður 5

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 3. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 2206071 Allur ferill málsins

    Stjórn fór yfir drög að áfangaskiptingu framkvæmda og óskar eftir upplýsingum um kostnað við áfanga framkvæmdanna auk þess að fá tilboð í gerð bogaskemma sem áformað er að reisa að svæðinu. Formanni, fostöðumanni og sviðsstjóra falið að funda með framkvæmdasviði og fá kostnaðartölur í þá áfanga sem nefndin hefur sett í forgangsröð.

  2. 2. Skjalasafn Fjarðabyggðar

    Mál 2409018 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu endurgerðar Lúðvíkshúss og hlutverk þess sem framtíðarskjalasafns Fjarðabyggðar og Skjala- og myndasafns Norðfjarðar.

    Brýnt er að skjalasafnið verði tekið í notkun sem fyrst en unnið er að endurgerð hússins. Fundur hefur verið haldinn með skipulags- og framkvæmdasviði um lokááfanga framkvæmdanna.

    Stjórn felur sviðsstjóra og formanni að fylgja eftir. Tekið fyrir á næsta fundi stjórnar.

  3. 3. Úthlutun menningarstyrkja 2025

    Mál 2501204 Allur ferill málsins

    Umræða um úthlutun menningarstyrkja en umsóknarfrestur til að sækja um menningarstyrk til Fjarðabyggðar rennur út 10. febrúar nk. Farið yfir reglur um styrki, https://www.fjardabyggd.is/Media/reglur-vegna-uthlutunar-menningarstyrkja-2018.pdf.

    Úthlutun tekin fyrir á næsta fundi stjórnar.

    Stjórn felur sviðsstjóra að uppfæra reglurnar með vísan til stjórnsýslu menningarmála.

  4. 4. Verkefni menningarstofu 2025

    Mál 2501084 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður fór yfir verkefni á vegum menningarstofu sem eru á döfinni næstu misseri og nýleg verkefni stofunnar.

    Stjórn lýst vel á framgang í verkefnum og fagnar því sem framundan er í störfum stofunnar.

  5. 5. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2025

    Mál 2501202 Allur ferill málsins

    Farið yfir undirbúning og skipulagningu á starfsemi safnanna 2025. Gerð grein fyrir vettvangsheimsókn á söfnin og geymslur þeirra. Fyrir liggur að yfirfara þarf munaskrár sem til eru og muni safnanna. Unnið er að því að kortleggja geymslurnar. Leggja þarf drög að söfnunarstefnu fyrir söfnin og grisjunaráætlun til að ná utanum eignir þeirra og muni.

    Stjórn felur forstöðumanni að hefja undirbúning að mótun stefnunnar út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir í aðfangaskrám.

  6. 6. Sigurgeir Svanbergsson - Heimildarmynd

    Mál 2411197 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til stjórnar menningarstofu beiðni um styrkveitingu til gerðar heimildarmyndar um sundafrek Sigurgeirs Svanbergssonar en hann áformar sund yfir Ermasund 18-23. júlí 2025.

    Stjórn telur að umsóknin falli ekki undir menningarstyrkveitingar og felur sviðsstjóra að ræða við framleiðanda um efni myndarinnar.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur menningarmálaflokksins á árinu 2024 og niðurstöður hans.

  8. 8. Uppbyggingarsjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar

    Mál 2410027 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutanir úr uppbygginasjóði en veittur var styrkur til Menningarstofu vegna Þórsmarkar: Staðbundnar list rannsóknir og lífleg dagskrá 1. m.kr. og til Tónlistarmiðstöðvar vegna upptaktsins á Austurlandi 2025 1. m.kr.

  9. 9. Safnasjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar

    Mál 2411048 Allur ferill málsins

    Farið yfir úthlutanir á styrkjum Safnasjóðs en Fjarðabyggð fékk eina umsókn samþykkta, undirbúning á samhæfingu safna og sýninga í Fjarðabyggð 2025 til 2030 og nemur styrkfjárhæð 2,5 m.kr.

    Stjórn felur forstöðumanni að útfæra verkefnið og hrinda því í framkvæmd.