Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2025
Mál 2501202 Fyrst á dagskrá 3. febrúar 2025, síðast 27. mars 2025. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Stjórn menningarstofu.
Í heiti málsins: Menning og söfn
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2025
Stjórn menningarstofu, fundur 13 liður 5
Farið yfir undirbúning og skipulagningu á starfsemi safnanna 2025. Gerð grein fyrir vettvangsheimsókn á söfnin og geymslur þeirra. Fyrir liggur að yfirfara þarf munaskrár sem til eru og muni safnanna. Unnið er að því að kortleggja geymslurnar. Leggja þarf drög að söfnunarstefnu fyrir söfnin og grisjunaráætlun til að ná utanum eignir þeirra og muni.
Stjórn felur forstöðumanni að hefja undirbúning að mótun stefnunnar út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir í aðfangaskrám.
-
Bæjarráð, fundur 882 liður 11.5
Fundargerðin „Stjórn menningarstofu - 13“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 392 liður 5.5
Fundargerðin „Stjórn menningarstofu - 13“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Stjórn menningarstofu, fundur 15 liður 1
Rædd drög að söfnunarstefnum fyrir Fjarðabyggð. Farið yfir heimsóknir í geymslur safnanna og forgangsröðun verkefna. Jafnframt kynnt umsókn í nýsköpunarsjóð námsmanna sem er til að styðja við verkefni í forvörslu og grisjun safnakosts.
-
Bæjarstjórn, fundur 394 liður 8.1
Fundargerðin „Stjórn menningarstofu - 15“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.