Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirStjórn menningarstofu

Stjórn menningarstofu, fundur 15

10. mars 2025, kl. 14:00 til 15:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm, varaformaður
  • Arndís Bára Pétursdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 394 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2025

    Mál 2501202 Allur ferill málsins

    Rædd drög að söfnunarstefnum fyrir Fjarðabyggð. Farið yfir heimsóknir í geymslur safnanna og forgangsröðun verkefna. Jafnframt kynnt umsókn í nýsköpunarsjóð námsmanna sem er til að styðja við verkefni í forvörslu og grisjun safnakosts.

  2. 2. Flutningur muna Safnahússins úr Gylfastöðum

    Mál 2502253 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að áætlun um forvörslu og grisjun muna úr Strandgötu 62 á Norðfirði í Atóm.

    Stjórn samþykkir framlögð drög og felur verkefnastjóra safna að vinna áfram að söfnunarstefnu fyrir söfn í eigu sveitarfélagsins. Stefnan verður tekin fyrir í stjórn þegar drög liggja fyrir.

  3. 3. Beiðni um afnot af aðstöðu til hljómsveitaræfinga í Skrúð

    Mál 2502249 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni áhugafólks um afnot af aðstöðu til hljómsveitaræfinga í Skrúð.

    Stjórn menningarstofu tekur vel í erindið og felur stjórnanda íþróttamála að útfæra afnot af húsnæði með bréfritara ásamt því að setja upp leigusamning í samráði við bæjarritara sem lagður verður fyrir bæjarráð.

  4. 4. Umsókn um styrk - Íslenska stríðsárasafnið endurbygging

    Mál 2502210 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir umsókn í Fiskeldissjóð til endurgerðar Íslenska Stríðsárasafnsins.

  5. 5. Umsókn um styrk - forvörsluhús safna

    Mál 2502211 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir umsókn í Fiskeldissjóð til uppbyggingar varðveisluhúss fyrir minjasöfn í Fjarðabyggð.

  6. 6. Samningur um menningu - tónlistarlíf á Austurlandi

    Mál 2011187 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar viðauki við menningarsamning Fjarðabyggðar við Samband sveitarfélaga á Austurlandi.