Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 882

10. febrúar 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 392 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Elís Pétur Elísson og Jón Björn Hákonarson,

    Fundargerð bæjarráðs frá 10. febrúar utan liðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Kauptilboð í Strandgötu 39 Eskifirði

    Mál 2502025 Allur ferill málsins

    Lagt fram kauptilboð í fasteignina Strandgötu 39 á Eskifirði.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að ræða við tilboðsgjafa varðandi kauptilboðið.

  2. 2. Kauptilboð í Sólbakka 7, Breiðdalsvík

    Mál 2501215 Allur ferill málsins

    Lagt fram nýtt tilboð í fasteignina Sólbakki 7 Breiðdalsvík.

    Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna sölunnar.

  3. 3. Umsókn um stofnframlög á árinu 2025

    Mál 2502029 Allur ferill málsins

    Lögð fram auglýsing Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að opnað hafi verið fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á íbúðum til að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. lögum nr. 52/2016.

    Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög til byggingar eða kaupa á íbúðum. Fjármálastjóra falin vinnsla málsins.

  4. 4. Fiskeldissjóður - umsóknir 2025

    Mál 2502013 Allur ferill málsins

    Fiskeldissjóður hefur auglýst til úthlutunar úr sjóðnum á árinu 2025 kr. 456.100.000 til sveitarfélaga þar sem sjókvíaeldi er starfrækt.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna að umsóknum í sjóðinn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  5. 5. Stöðumat vegna óveðurs

    Mál 2502058 Allur ferill málsins

    Farið yfir atburði og viðbrögð vegna óveðurs sem gekk yfir 5. og 6. febrúar og olli verulegum skemmdum á Stöðvarfirði á eignum og innviðum.

    Bæjarráð þakkar öllum þeim aðilum sem tókum þátt í aðgerðum á vettvangi óveðursins.

  6. 6. Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði Ægisgata 6

    Mál 2502027 Allur ferill málsins

    Fjallað um deiliskipulag miðbæjarins á Reyðarfirði og lóða við Bræðslureit.

    Bæjarráð felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna áfram að málinu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  7. 7. Úthlutun byggðakvóta 2024 og 2025

    Mál 2501134 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi matvælaráðuneytisins vegna úthlutunar byggðakvóta 2024 til 2025 og gerð sérreglna.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir forsendur fyrir úthlutuninni og erindið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  8. 8. Samningur um leigu á herbergi í sundlaug Eskifjarðar fyrir sjúkraþjálfun

    Mál 2502010 Allur ferill málsins

    Lögð er fram umsókn um leigu á herbergi í sundlauginni á Eskifirði til starfsemi tengdri sjúkraþjálfun.

    Bæjarráð samþykkir að leigja út aðstöðuna en gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum. Jafnframt er bæjarstjóra falin undirritun samnings.

  9. 9. Ósk um styrk til afnota af Egilsbúð

    Mál 2502059 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Verkmenntaskóla Austurlands þar sem óskað er eftir styrk vegna afnota af Egilsbúð vegna uppsetningar Leikfélagsins Djúpið, Nemendafélags VA og Leikfélags Norðfjarðar á söngleiknum HEATHERS.

    Bæjarráð samþykkir að veita styrk á móti leigu af Egilsbúð, tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  10. 10. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 960, 961 og 962 lagðar fram til kynningar.

  11. 11. Stjórn menningarstofu - 13

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 3. febrúar

    1. 11.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    2. 11.2 Skjalasafn Fjarðabyggðar2409018
    3. 11.3 Úthlutun menningarstyrkja 20252501204
    4. 11.4 Verkefni menningarstofu 20252501084
    5. 11.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20252501202
    6. 11.6 Sigurgeir Svanbergsson - Heimildarmynd2411197
    7. 11.7 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
    8. 11.8 Uppbyggingarsjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar2410027
    9. 11.9 Safnasjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar2411048
  12. 12. Sameiginlegur fundur HSA og bæjarráðs

    Mál 2401024 Allur ferill málsins

    Fjallað um sameiginleg málefni Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málum sem til umræðu voru á fundinum eftir.