Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 883

17. febrúar 2025, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 392 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð bæjarráðs frá 17. febrúar utan liðar 6 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Endurgerð upptakastoðvirkja í Drangagili

    Mál 2310177 Allur ferill málsins

    Framlagður verkkaupasamningur og verkáætlun Framkvæmdasýslu ríkisins og Fjarðabyggðar vegna endurgerðar upptakastoðvirkja á Norðfirði.

    Bæjarráð samþykkir verkkaupasamning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  2. 2. Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá uppkaup fasteigna

    Mál 2502108 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur hönnun ofanflóðavarna fyrir Grjótá á Eskifirði. Hönnun gerir ráð fyrir að fasteignir við Grjótárgötu C,D og E ásamt Strandgötu 36 þurfi að víkja.

    Bæjarráð samþykkir að hefja ferli við uppkaup eigna vegna ofanflóðavarna í Grjótá í samvinnu við Ofanflóðasjóð og felur bæjarstjóra að tilnefna matsmann af hálfu sveitarfélagsins.

  3. 3. Reglur um leikskólaþjónustu Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2502063 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum leikskólaþjónustu Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með tveim atkvæðum og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Stefán Þór Eysteinsson situr hjá við afgreiðsluna.

  4. 4. Vinnustaðagreining 2024

    Mál 2502118 Allur ferill málsins

    Framlagðar sem trúnaðarmál niðurstöður Vinnustaðagreiningar 2024 og greiningu mannauðs- og umbótasviðs varðandi niðurstöðuna.

    Bæjarráð fór yfir niðurstöður en sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs mun vinna áfram með niðurstöður ásamt stjórnendum stofnana.

  5. 5. Samningur við Píeta samtökin

    Mál 2501156 Allur ferill málsins

    Vísað frá fjölskyldunefnd til staðfestingar bæjarráðs samningi við Píeta samtökin.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  6. 6. Úthlutun byggðakvóta 2024 og 2025

    Mál 2501134 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir að nýju erindi matvælaráðuneytisins vegna úthlutunar byggðakvóta 2024 til 2025 og gerð sérreglna.

    Bæjarráð samþykkir að framkvæmd á úthlutunar á byggðakvóta verði með sama hætti og á síðasta ári.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á matvælaráðuneytið að tryggja að byggðakvótinn verði óbreyttur milli ára og vekur jafnframt athygli á þeim skerðingum sem orðið hafa á Austurlandi, sbr. framangreind gögn. Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri þróun að úthlutanir úr 5,3% pottinum dragist sífellt saman á Austfjörðum, hvort sem litið er til almenns eða sértæks byggðakvóta eða strandveiða.

    Bæjarráð ítrekar að markmið byggðafestra aðgerða er að stuðla að stöðugleika í atvinnu- og samfélagsuppbyggingu landsins, ekki síst á þeim svæðum sem standa veikari fæti. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirkomulag kvótaúthlutana með það fyrir augum að stuðla að jafnvægi milli landshluta og tryggja áframhaldandi mannlíf, atvinnu og uppbyggingu á Austurlandi.

  7. 7. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026

    Mál 2205170 Allur ferill málsins

    Framsóknarflokkur tilnefnir Jón Kristinn Arngrímsson sem varamann í hafnarstjórn í stað Jóns Björns Hákonarsonar til 1. júní 2025.

  8. 8. Stefna og áherslur lögreglunnar á Austurlandi

    Mál 2502096 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar stefna Lögreglustjórans á Austurlandi fyrir árið 2025.

  9. 9. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga 2025

    Mál 2502088 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.

  10. 10. Fab Lab Austurland

    Mál 2403249 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar árskýrsla Fablab á Austurlandi 2024.

  11. 11. Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker

    Mál 2402163 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar gögn vegna þjóðlendukröfu ríkisins í eyjar og sker.

  12. 12. Yfirlýsing frá Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi

    Mál 2501123 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar yfirlýsing Miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi vegna lokunar flugbrauta 13 og 31 á Reykjavíkurflugvelli.

    Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu sína vegna málefna flugvallarins í Reykjavík og skorar á Reykjavíkurborg, stjórnvöld og Isavia að tryggja flugrekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar án tafar. Brýnir hagsmunir eru í húfi, þar sem óheft aðgengi að flugvellinum er lífsnauðsynlegt fyrir sjúkraflug, sem veitir veikum og slösuðum aðgang að bráðri heilbrigðisþjónustu á Landspítalanum. Á hverju ári eru fluttir um 950 til 1000 sjúklingar með sjúkraflugi, þar af um 630 til 650 til Reykjavíkur, og er óásættanlegt að lokun flugbrauta í myrkri takmarki þessa þjónustu. Ljóst er að slíkar takmarkanir gætu dregið úr lífslíkum eða batahorfum fjölda sjúklinga. Bæjarráð hvetur aðila málsins til að leita allra leiða til úrbóta, í þágu jafns aðgangs allra landsmanna að heilbrigðisþjónustu, eins og kveðið er á um í lögum og hefjast handa við það nú þegar.

  13. 13. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025

    Mál 2502102 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar 157. fundargerð stjórnar Austurbrúar ásamt fundargerð haustþings Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  14. 14. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025

    Mál 2502101 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 84 lögð fram til kynningar.

  15. 15. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025

    Mál 2501007 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 80 lögð fram til kynningar.

  16. 16. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025

    Mál 2502038 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 963 lögð fram til kynningar.

  17. 17. Hafnarstjórn - 322

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 17.1 Þróun og framtíðarskipulag Mjóeyrarhafnar2408152
    2. 17.2 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn2501155
    3. 17.3 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
    4. 17.4 Óveður 1.-6.febrúar 2025 - Áhrif á hafnir2502036
    5. 17.5 Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum2501146
    6. 17.6 Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar2502061
    7. 17.7 Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður2006157
    8. 17.8 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20242402027
    9. 17.9 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20252502023
  18. 18. Fjölskyldunefnd - 25

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Sameiginlegar föstudagsopnanir í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar2411175
    2. 18.2 Staða fatlaðra barna í fyrirhuguðu verkfalli Kennarasambands Íslands2501179
    3. 18.3 Stuðningur vegna fræðslu ADHD barna2501197
    4. 18.4 Reglur um leikskólaþjónustu Fjarðabyggðar 20252502063
    5. 18.5 Búsetuúrræði fatlaðs fólks Fjarðabyggð2011021
    6. 18.6 Skóladagatöl 2025-20262501144