Fjölskyldunefnd, fundur 25
10. febrúar 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 883 liður 18
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 392 liður 3
Til máls tóku Jóhanna Sigfúsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sameiginlegar föstudagsopnanir í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
Mál 2411175 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir að félagmiðstöðvar í Fjarðabyggð haldi sameiginlega opnun einu sinni í mánuði í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Markmið verkefnisins er að efla félagsauð ungmenna, skapa sterkari tengsl milli byggðakjarna og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Til að tryggja aðgengi allra ungmenna óháð búsetu er gert ráð fyrir rútuferðum og kílómetragjaldi fyrir foreldra frá afskekktari stöðum. Verkefnið er lagt fram sem tilraunaverkefni til loka skólaárs 2025.
-
2. Staða fatlaðra barna í fyrirhuguðu verkfalli Kennarasambands Íslands
Mál 2501179 Allur ferill málsins
Ályktun Umhyggju félagi langveikra barna, Landssamtökunum Þroskahjálp, Einhverfusamtökunum,Sjónarhóli ráðgjafarmiðstöðog ÖBÍ réttindasamtökum vegna stöðu fatlaðra barna í verkfalli kynnt.
-
3. Stuðningur vegna fræðslu ADHD barna
Mál 2501197 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál erindi vegna námskeiðastyrks fyrir börn með ADHD greiningu. Fjölskyldunefnd felur sviðstjóra að hafa samband við bréfritara. Einnig er sviðstjóra falið að kanna hvaða valmöguleikar eru til námskeiðahalds innan sveitarfélagsins.
-
4. Reglur um leikskólaþjónustu Fjarðabyggðar 2025
Mál 2502063 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir drög að reglum um leikskólaþjónustu Fjarðabyggðar og vísar reglunum til bæjarráðs.
Fulltrúi Fjarðalistans situr hjá við afgreiðslu málsins
-
5. Búsetuúrræði fatlaðs fólks Fjarðabyggð
Mál 2011021 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd heimsótti búsetukjarna fyrir fatlað fólk á Reyðarfirði.
-
6. Skóladagatöl 2025-2026
Mál 2501144 Allur ferill málsins
Verklagsreglur skóladagatala og skóladagatöl 2025-2026 og hlutverk fjölskyldunefndar kynnt. Aðlaga þarf reglurnar í samræmi við það verklag sem tíðkast í dag. Sviðstjóra falið að endurskoða verklagsreglurnar með skólastjórnendum.