Bæjarráð, fundur 884
24. febrúar 2025, kl. 08:30 til 10:25, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 393 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 24. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samskiptastefna FJB - Aton
Mál 2410169 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um áherslur og ásýnd sveitarfélagsins þar sem framtíðarsýn, gildi, persónuleiki, og lykilskilaboð gagnvart markhópum Fjarðabyggðar eru skilgreind.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur upplýsingafulltrúa áframhaldandi vinnslu málsins.
-
2. Veikindalaun 2024
Mál 2408127 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um greiningu veikindalaun fyrir síðari hluta ársins 2024.
Vísað til fjármálasviðs til úrvinnslu og gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024 vegna langtímaveikinda.
-
3. Ráðningakerfið Alfreð
Mál 2502119 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi við Alfreð ehf. vegna nýs ráðningakerfis, auk minnisblaðs um innleiðingu á nýju kerfi sem leysi eldra ráðningarkerfi af hólmi.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Reglur um menningarstyrki
Mál 1711145 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum menningarstyrkja. Um er að ræða uppfærslu til að samræma reglur stjórnkerfi sveitarfélagsins en efnislegar breytingar eru ekki lagðar til.
Bæjarráð samþykkir breytingar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Kauptilboð í Strandgötu 39 Eskifirði
Mál 2502025 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju kauptilboð R101 ehf. í Strandgötu 39 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina og felur bæjarstjóra undirritun skjala vegna sölu eignarinnar.
-
6. Umsókn um styrk til hátíðarinnar BigJump
Mál 2501216 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu til umfjöllunar bæjarráðs umsókn frá Wojciech Zdzislaw Grzelak um styrk vegna BigJump hátíðarinnar. Stjórnin fól forstöðumanni að aðstoða við undirbúning tónleikahaldsins á hátíðinni.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til hátíðarinnar að fjárhæð 250.000 kr. auk þess sem það veitir styrk sem nemur afnotum af íþróttahúsinu á Reyðarfirði að þrifum undanskildum. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
7. Unglingalandsmót UMFÍ á Egilstöðum 2025
Mál 2502147 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Ungmennafélagi íslands um landsmót sem haldið verður á Egilsstöðum næsta sumar og beiðni um að Fjarðabyggð gerist styrktar- og samstarfsaðili mótsins.
Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð gerist samstarfsaðili mótsins og leggja því til 500.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
-
8. Tilkynning vinnustöðvun
Mál 2502186 Allur ferill málsins
Framlögð tilkynning frá Kennarasambandi Íslands um boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar starfsmanna í Félagi leikskólakennara í leikskólum Fjarðabyggðar frá og með 24. mars nk.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs og sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs að undirbúa og skipuleggja starfsemi með stjórnendum leikskólanna.
-
9. Landsþings sambandsins 2025
Mál 2502107 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar boðun á XL. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verðu 20. mars nk.
-
10. Frumvarp um jöfnunarsjóð - umsagnarbeiðni fyrir bæjarráð
Mál 2502158 Allur ferill málsins
Framlögð umsagnarbeiðni vegna frumvarps til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Frestur framlengdur og er til 5. mars kl. 12:00.
Bæjarráð frestar afstöðu til frumvarpsins og tekur fyrir á næsta fundi.
-
11. Umsagnarbeiðni mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög
Mál 2502159 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga (mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög).
Bæjarráð tekur undir sjónarmið um mikilvægi mats á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög sé lagt til grundvallar við gerð laga og reglugerða.
-
12. Fjölskyldunefnd - 26
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 17. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 12.1 Skólabreytingar2501074
- 12.2 Sameiginlegir páskapassar Oddsskarðs og Stafdals2502009
- 12.3 Frsístundakerfið Vala2502062
- 12.4 Skólafrístund2404044
- 12.5 Ungmennaráð - 172501010F
- 12.6 Öldungaráð - 152501019F
- 12.7 Ungmennaráð - 182502001F
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 26
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. febrúar.
- 13.1 Grunnskólinn á Reyðarfirði, klæðning og gluggar2502129
- 13.2 Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði2401199
- 13.3 Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 262501005
- 13.4 Framkvæmdaleyfi landmótun Digranesvegur, Mjóeyrarhöfn2502141
- 13.5 Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Norðfirði2502057
- 13.6 Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Breiðdalsvík2502056
- 13.7 Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Stöðvarfirði2502055
- 13.8 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður2009034
- 13.9 Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði2502054
- 13.10 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar2302213
- 13.11 Fundaáætlun SFN 20252212113
-
14. Stjórn menningarstofu - 14
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 17. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 14.1 Umsóknir um styrki til menningarmála 20252502111
- 14.2 Reglur um menningarstyrki1711145
- 14.3 Beiðni um fjárstuðning 20252502008
- 14.4 Umsókn um styrk til hátíðarinnar BigJump2501216
- 14.5 Þórsmörk - leigusamningur2211104
-
15. Ungmennaráð - 17
Fundargerð ungmennaráðs frá 15. janúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
-
16. Ungmennaráð - 18
Fundargerð ungmennaráðs frá 12. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
-
17. Öldungaráð - 15
Fundargerð öldungaráðs frá 15. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 17.1 Starfsreglur öldungaráðs2409187
- 17.2 Janusarverkefnið 20222206067
- 17.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
- 17.4 Starfsáætlun öldungaráðs2411169
- 17.5 Kynning á netsvindlum fyrir öldungaráð2501192