NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 26
19. febrúar 2025, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Elís Pétur Elísson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 884 liður 13
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. febrúar.
Bæjarstjórn, fundur 393 liður 3
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Grunnskólinn á Reyðarfirði, klæðning og gluggar
Mál 2502129 Allur ferill málsins
Niðurstöður verðkönnunar á endurbótum á austurhlið elstu byggingar Grunnskóla Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Launafl ehf.
Jón Grétar Margeirsson sat þennan lið.
-
2. Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Mál 2401199 Allur ferill málsins
Framlögð skipulags- og matslýsing vegna breytinga á aðal- og deiliskipulagi í Dal á Eskifirði. Breytingin felur í sér að verið er að færa reit fyrir tjaldsvæði neðan Dalbrautar ofan Dalbrautar utan við bæinn Eskifjörð. Með því stækkar fyrirhugað svæði fyrir nýtt deiliskipulag íbúðarsvæðis í dalnum á Eskifirði. Breytingar voru áður teknar fyrir á fundi nefndarinnar 7. febrúar 2024 vegna breyttrar staðsetningar á afþreyingar- og ferðamannasvæði og stækkun á íbúðarsvæði í Dal 3 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar og gerð nýs deiliskipulags og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26
Mál 2501005 Allur ferill málsins
Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar. Breytingin felur í sér stækkun og sameiningu lóða að Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26 í eina lóð, þ.e. Egilsbraut 22. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir eigendum nærliggjandi lóða.
-
4. Framkvæmdaleyfi landmótun Digranesvegur, Mjóeyrarhöfn
Mál 2502141 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðarhafna um framkvæmdaleyfi vegna landmótunar við Digranesveg, Mjóeyrarhöfn, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framkvæmdina og felur stjórnanda skipulags- og byggingarmála að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum skilyrðum.
-
5. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Norðfirði
Mál 2502057 Allur ferill málsins
Míla óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Breiðdalsvík
Mál 2502056 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
7. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Stöðvarfirði
Mál 2502055 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
8. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Mál 2009034 Allur ferill málsins
Breyting á vatnsrás Nes- og Bakkagil. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tilfærslu á vatnsrás fyrir varnagarða við Nes- og Bakkagil og er það innan diliskipulagsmarka svæðisins með lítls háttar breytingum á verkmörkum.
-
9. Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði
Mál 2502054 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
10. Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Mál 2302213 Allur ferill málsins
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa áframhaldandi vinnu við samninginn og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
11. Fundaáætlun SFN 2025
Mál 2212113 Allur ferill málsins
Fundaáætlun SFN 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur formanni að gera fundaáætlun og leggja fyrir á næesta fund.