NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 27
27. febrúar 2025, kl. 16:00 til 16:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Ívar Dan Arnarson, varamaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 885 liður 13
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 393 liður 4
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar 27. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Byggingarleyfi Kirkjubólseyri 12
Mál 2502189 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir hesthús að Kirkjubólseyri 12, Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdarnefnd samþykkir byggingaráformin og felur stjórnandi byggingar- skipulags og umhverfisdeildar að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Vakin var athygli á afstöðu hússins sem snýr ekki eins og næsta hesthúsið fyrir innan. Umsækjandi gerði grein fyrir afstöðu byggingarinnar á lóðinni og færði rök fyrir henni.
-
2. Umsókn um lóð Litlagerði 6
Mál 2502192 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Litlagerði 6 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir úthlutun lóðar og vísar lóðaúthlutuninni til staðfestingar í bæjarráði.
-
3. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2502199 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar umsókn um stöðuleyfi þar sem enn er óklárað mál er varðar fasteign á sömu lóð.
-
4. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2025
Mál 2502155 Allur ferill málsins
Fundargerð 183.fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna