Bæjarráð, fundur 885
3. mars 2025, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 393 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fiskeldissjóður - umsóknir 2025
Mál 2502013 Allur ferill málsins
Fjallað um umsóknir sem sendar verða til fiskeldissjóðs.
-
2. Upplýsingatæknimál - vaktin.com innleiðing
Mál 2502226 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga slökkviliðsstjóra um innleiðingu á kerfinu vaktin.com sem er kerfi til að halda utanum skráningar vegna sjúkraflutninga og útkalla slökkviliðs.
Bæjarráð samþykkir að kerfið verði tekið upp og felur bæjarstjóra undirritun samnings um innleiðingu.
-
3. Reglur Fjarðabyggðar um aðkomu félagsþjónustu að heimilisofbeldismálum í samstarfi við lögreglu
Mál 2502133 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um aðkomu félagsþjónustu að heimilisofbeldismálum í samstarfi við lögreglu.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2025
Mál 2409146 Allur ferill málsins
Fjallað um breytingar á gjaldskrá en lagt er til að skýra ábyrgð leigutaka á þrifum vegna stórviðburði í íþróttahúsum og kostnaðarhlutdeild viðburðarhaldara í þeim.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um breytingu á gjaldskrá íþróttahúsa og hún taki gildi frá og með 1. apríl 2025. Vísað til kynningar í fjölskyldunefnd.
-
5. Frumvarp um jöfnunarsjóð - umsagnarbeiðni fyrir bæjarráð
Mál 2502158 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju umsagnarbeiðni vegna frumvarps til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir drög að umsögn og felur bæjarstjóra að uppfæra hana og skila í samráðsgátt.
-
6. Framlög til stjórnmálaflokka
Mál 2212078 Allur ferill málsins
Fjallað um framkvæmd afgreiðslu framlaga til stjórnmálaflokka í Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarritara að yfirfara verklag við afgreiðslu framlaga til stjórnmálaflokka.
-
7. Umsókn um lóð Litlagerði 6
Mál 2502192 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Litlagerði 6, 730 Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
8. Málþing um snjóflóð og samfélög 5.-6. maí 2025
Mál 2502235 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar boð á málþing um snjóflóð sem haldið verður á Ísafirði 5. til 6. maí nk.
-
9. Fjarskiptaáætlun Austurlands 2024-2025 - úttekt á stöðu fjarskiptamála
Mál 2502207 Allur ferill málsins
Fjarskiptaáætlun Austurlands 2025-2025 lögð fram til kynningar.
Bæjarráð vísar áætluninni til almannavarnarnefndar til skoðunar.
-
10. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerðir 965., 966., 967., 968. og 969. fundar stjórnar Sambandsins lagðar fram til kynningar.
-
11. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025
Mál 2502102 Allur ferill málsins
158. fundargerð Austurbrúar og 9.fundargerð stjórnarfundar SSA lagar fram til kynningar.
-
12. Fjölskyldunefnd - 27
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 26. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 12.1 Skóladagatöl 2025-20262501144
- 12.2 Ungmennaráð - Símareglur í skólum2502006
- 12.3 Ungmennaráð - Áhyggjur Ungmennaráðs vegna stöðu kennara og nemenda í Fjarðabyggð2502019
- 12.4 Kynning á skólaþjónustu Fjarðabyggðar í nýju lagaumhverfi2502187
- 12.5 Reglur Fjarðabyggðar um aðkomu félagsþjónustu að heimilisofbeldismálum í samstarfi við lögreglu2502133
- 12.6 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa2004159
- 12.7 Fjölmenningaráð2411165
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 27
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 27. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Byggingarleyfi Kirkjubólseyri 122502189
- 13.2 Umsókn um lóð Litlagerði 62502192
- 13.3 Umsókn um stöðuleyfi2502199
- 13.4 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20252502155