Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 27

26. febrúar 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Magnús Árni Gunnarsson
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 885 liður 12

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 26. febrúar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 393 liður 6

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 26. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skóladagatöl 2025-2026

    Mál 2501144 Allur ferill málsins

    Skóladagatöl grunnskóla Fjarðabyggðar lagt fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir skóladagatölin fyrir sitt leiti og vísar áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Ungmennaráð - Símareglur í skólum

    Mál 2502006 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd felur sviðsstjóra að yfirfara reglur um notkun snjalltækja nemenda í grunnskólum með það fyrir augum að samræma þær í samráði við skólastjórnendur. Fjölskyldunefnd er sammála því að styðjast beri við þegar samþykktar reglur um notkun snjalltækja við yfirferðina og samræminguna. Markmiðið er að setja sameiginlegar reglur sem allir skólar taki upp frá og með næsta skólaári sem taka mið af fyrri samþykkt bæjarstjórnar.

  3. 3. Ungmennaráð - Áhyggjur Ungmennaráðs vegna stöðu kennara og nemenda í Fjarðabyggð

    Mál 2502019 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd þakkar erindi frá ungmennaráði vegna stöðu kennara og nemenda í Fjarðabyggð. Sviðstjóra falið að funda með ungmennaráði og fara yfir stuðningsþjónustu barna í grunnskólum.

  4. 4. Kynning á skólaþjónustu Fjarðabyggðar í nýju lagaumhverfi

    Mál 2502187 Allur ferill málsins

    Starfsfólk skólaþjónustu Fjarðabyggðar fór yfir boðaða stefnu stjórnvalda varðandi skólaþjónustu í grunn- og leikskólum. Kynning á starfsemi skólaþjónustu Fjarðabyggðar.

  5. 5. Reglur Fjarðabyggðar um aðkomu félagsþjónustu að heimilisofbeldismálum í samstarfi við lögreglu

    Mál 2502133 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir reglur Fjarðabyggðar um aðkomu félagsþjónustu að heimilisofbeldismálum í samstarfi við lögregu fyrir sitt leiti og vísar til bæjarstjórnar.

  6. 6. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa

    Mál 2004159 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar samþykkir drög að samningum við íþróttafélögin vegna þjálfunar í verkefninu fjölþætt heilsuefling við eldri aldurshópa.

  7. 7. Fjölmenningaráð

    Mál 2411165 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir að tilnefna Hönnu Dóru Helgudóttur sem aðalmann og Beu Meijer sem varamanns í fjölmenningaráð til viðbótar við þá sem þegar hafa verið skipaðir.