Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 28

10. mars 2025, kl. 16:00 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, formaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Magnús Árni Gunnarsson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 394 liður 5

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jóhanna Sigfúsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Úthlutun kennslutíma til grunnskóla 2025

    Mál 2503044 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu að úthlutun kennslutíma til grunnskóla Fjarðabyggðar 2025-2026 ásamt breytingu á úthlutunarlíkani Fjarðabyggðar í samræmi við umræður á fundinum.

  2. 2. Samkennsla Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

    Mál 2502223 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd Fjarðabyggðar samþykkir tillögur um að breyta kennslufyrirkomulagi í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla með því að seinka skólabyrjun til Kl: 08:30 alla virka daga. Nefndin samþykkir einnig að samkennsla fari fram þannig að kennt verði 3 daga á öðrum staðnum og 2 daga á hinum.

  3. 3. Samþætting í þágu farsældar barna kynning

    Mál 2502177 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd þakkar Bergeyju Stefánsdóttur greinagóðu kynning á samþættingu í þágu farsældar barna og innleiðingu í Fjarðabyggð

  4. 4. Skólafrístund

    Mál 2404044 Allur ferill málsins

    Fjölskyldunefnd samþykkir tillögur um að hefja yfirfærslu á skólafrístund Fjarðabyggðar haustið 2025 verði yfirfærslunni haldið áfram í samræmi við fyrri ákvarðanir Íþrótta- og tómstundanefndar.

  5. 5. Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2025

    Mál 2409146 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í fjölskyldunefnd breytingar á gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir.

  6. 6. Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla

    Mál 2003044 Allur ferill málsins

    Sískráning barnaverndar kynnt.

  7. 7. Skýrsla stjórnenda - félagsþjónusta og barnavernd

    Mál 2311096 Allur ferill málsins

    Stjórnandi kynnti stöðu mála hjá barnavernd og félagsþjónustu Fjarðabyggðar.

  8. 8. Fjölmenningarráð - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölmenningaráðs lögð fram til kynningar.