Fjölmenningarráð, fundur 1
4. mars 2025, kl. 17:00 til 18:15, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Ólöf Alda Gunnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
- Emilia Jadwiga Myszak, aðalmaður
- Daniela Grassi Da Costa, aðalmaður
- Patrizia Angela Sanmann, aðalmaður
- Katharina Termuehlen, aðalmaður
- Einar Bjarki Ómarsson, aðalmaður
- Hanna Dóra Nachisichi Helgud., embættismaður
- Joanna Katarzyna Mrowiec, varamaður
- Ólöf Alda Gunnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Fjölskyldunefnd, fundur 28 liður 8
Fundargerð fjölmenningaráðs lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 394 liður 9
Til máls tók Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð fjölmenningarráðs frá 1. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Fjölskyldunefnd, fundur 30 liður 9
Fundargerð fjölmenningaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd
Dagskrá
-
1. Erindisbréf fjölmenningarráðs
Mál 2303056 Allur ferill málsins
Starfsmaður kynnir erindisbréf fjölmenningaráðs og skipunarbréf fulltrúa ráðsins.
-
2. Erindisbréf fjölmenningarráðs
Mál 2303056 Allur ferill málsins
Fundarmenn ræddu ýmsar hugmyndir um fjölmenningu. Þar á meðal var rætt var um tvítyngd börn og íslenskukennslu. Hugmyndir komu upp um tungumálaþjálfun fyrir börn með sjálfboðaliðum eða í samvinnu við Verkmenntaskólann. Hugmyndir um málþing fyrir fólk af erlendum uppruna á Austurlandi og menningarhátíð. Rætt um nýja vefsíðu Fjarðabyggðar og hvað má betur fara varðandi upplýsingar fyrir nýja íbúa í Fjarðabyggð.
-
3. Fjölmenningaráð
Mál 2411165 Allur ferill málsins
Fundurinn skoðaði mannfjölda í Fjarðabyggð eftir ríkisfangi og aldrur íbúa með erlent ríkisfang.