Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölmenningarráð

Fjölmenningarráð, fundur 3

16. september 2025, kl. 16:00 til 17:20, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Sigríður S. Pálsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Barbara Izabela Kubielas, aðalmaður
  • Emilia Jadwiga Myszak, aðalmaður
  • Patrizia Angela Sanmann, aðalmaður
  • Katharina Termuehlen, aðalmaður
  • Hanna Dóra Nachisichi Helgud., aðalmaður
  • Boudina J. G. Meijer, varamaður

Starfsmenn

  • Sigríður Stephensen Pálsdóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Fjölskyldunefnd, fundur 39 liður 6

    3. fundur Fjölmenningaráðs lagður fyrir nefndina

  • Bæjarráð, fundur 913 liður 26

    Fundargerð fjölmenningarráðs frá 16. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 10

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fjölmenningarráðs frá 16. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samfélagið okkar

    Mál 2509096 Allur ferill málsins

    Fundurinn fékk kynningu frá Guðrúnu Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra, hjá Austurbrú og Evu Jörgensen á verkefninu Samfélagið okkar. Eva mun senda starfsmanni Fjömenningarráðs skráningarform og upplýsingar um rýnihópa sem starfsmaður kemur til nefndarmanna. Fjölmenningarráð þakkar góða kynningu.

  2. 2. Bara tala - kynning

    Mál 2505205 Allur ferill málsins

    Starfsmenn kynna verkefnið Bara tala sem er starfstengt íslenskunám sem eykur orðaforða, hlustunarfærni og þjálfar aðflutta í að tala íslensku. Sagt var frá reynslu af notkun appsins í Skála, búsetuúrræði fyrir fatlaða einstaklinga á Reyðarfirði. Fjölmenningarráð hvetur til að þetta verði kynnt á fleiri stöðum, t.d. á starfsdegi starfsmanna leikskóla sem haldinn verður á Breiðdalsvík föstudaginn 26. september næstkomandi. Starfsmanni ráðsins falið að ræða við stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu. Fjölmenningarráð þakkar góða kynningu.

  3. 3. Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Haraldur Líndal, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar kemur inn á fund Fjölmenningarráðs og kynnir nýja heimasíðu sveitarfélagsins. Fjölmenningarráð þakkar fyrir góða kynningu.

  4. 4. Íbúaþing

    Mál 2509128 Allur ferill málsins

    Fjölmenningarráð óskar eftir fjárheimild árið 2026 til að halda íbúaþing fyrir einstaklinga af erlendum uppruna. Máli vísað til Fjölskyldunefndar.

  5. 5. Fundaáætlun fjölmenningarráðs

    Mál 2509129 Allur ferill málsins

    Fjölmenningarráð ákveður að fundir fjölmenningarráðs verði á sex vikna fresti, á þriðjudegi kl. 16.15.