Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 39

22. september 2025, kl. 16:15 til 17:30, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 913 liður 23

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 403 liður 7

    Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóli starfsemi leikskóla

    Mál 2509151 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fór yfir starfsemi leikskóla Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla gagnvart núverandi skólaári. Samráðsferli er yfirstandandi og munu stjórnendur upplýsa nefndina um það sem þar kemur fram.

  2. 2. Skóladagatöl 2025-2026

    Mál 2501144 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu leggur til breytingar á skóladagatali Leikskólans Kærabæjar: Starfsmannafundur sem áætlaður var föstudaginn 14. nóvember frá 14:00-16:00 færist til fimmtudagsins 13. nóvember og starfsmannafundur sem áætlaður var föstudaginn 17. apríl frá 14:00-16:00 færist til fimmtudagsins 16. apríl. Leikskólinn lokar þá kl. 14:00 þessa fimmtudaga í stað föstudaga. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar tillögur.

  3. 3. Samstarf Fjarðabyggðar við Eyrina Heilsurækt

    Mál 2312030 Allur ferill málsins

    Lagður fyrir fjölskyldunefnd samningur á milli Fjarðabyggðar og Eyrarinnar ehf. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðan samning fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  4. 4. Geðverndar og virkni úrræði

    Mál 2504109 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri fjölskyldusviðs fjallar um geðræktarmiðstöð Austurlands og biður um afnot af húsnæði Fjarðabyggðar að Melgerði 13 frá 13:00-17:00 tvo daga í viku fyrir starfsemina. Fjölskyldunefnd samþykkir afnotin fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.

  5. 5. Skólafrístund

    Mál 2404044 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga sviðstjóra um breytt fyrirkomulagi skólafrístundar frá og með áramótum 2026.Fjölskyldunefnd samþykkir að frístund grunnskóla Fjarðabyggðar færist yfir til fræðslumála. Innleiðing frístundar til íþrótta- og tómstundamála var eingöngu búin að eiga sér stað í Grunnskóla Reyðarjarðar en áður hafði öðrum innleiðingum verið frestað.

  6. 6. Fjölmenningarráð - 3

    Fundargerðin í heild

    3. fundur Fjölmenningaráðs lagður fyrir nefndina

  7. 7. Íbúaþing

    Mál 2509128 Allur ferill málsins

    Fjölmenningarráð óskar eftir fjárheimild fyrir árið 2026 til að halda íbúaþing fyrir einstaklinga af erlendum uppruna. Fjölskyldunefnd fagnar framtakinu og vísar áfram til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2026.