Fjölskyldunefnd, fundur 40
29. september 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Birgir Jónsson, varaformaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
- Líneik Anna Sævarsdóttir
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 914 liður 10
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. september.
Bæjarstjórn, fundur 403 liður 8
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 29. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2026
Mál 2509150 Allur ferill málsins
Launaáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2026 kynnt fyrir fjölskyldunefnd. Vísað til bæjarráðs.
-
2. Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóli starfsemi leikskóla
Mál 2509151 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fer yfir stöðuna í starfsemi leikskóla Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Fjölskyldunefnd felur stjórnenda fræðslumála og skólaþjónustu í samvinnu við
stjórnendur Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóla að vinna framtíðarsýn fyrir nýtingu skólahúsnæðis og lóðar á Breiðdalsvík í þágu allrar starfsemi í húsinu. Samráð verði við skólasamfélagið í þeirri vinnu. Fjölskyldunefnd vísar tillögum í minnisblaði til framkvæmdasviðs til úrlausnar eins fljótt og mögulegt er.
-
3. Beiðni um fjárheimild til endurnýjunar á tölvum sem uppfylla ekki öryggisviðmið
Mál 2509201 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu leggur fram beiðni um fjárheimild til endurnýjunar á 22 tölvum sem uppfylla ekki öryggisviðmið. Fjölskyldunefnd samþykkir fyrir sitt leiti og vísar til bæjarráðs.
-
4. Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli, viðbrögð við manneklu á leikskóladeildinni á Stöðvarfirði
Mál 2509204 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnir viðbrögð við manneklu á leikskóladeildinni á Stöðvarfirði, í Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóla. Fjölskyldunefnd samþykkir tillögur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu um viðbrögð við manneklu á leikskóladeildinni á Stöðvarfirði, í Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóla.
-
5. Undirbúningur fyrir stofnun farsældarráðs Austurlands
Mál 2509200 Allur ferill málsins
Fyrir hönd undirbúningshóps fyrir stofnun farsældarráðs Austurlands leggur stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fram drög að Samstarfssamningi um svæðisbundið farsældarráð á Austurlandi til umsagnar.Fjölskyldunefnd felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að skrifa umsögn og leggja fyrir næsta fund.
-
6. Öldungaráð - 18
Fundagerð öldungaráðs nr. 18 lögð fram til kynningar.