Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 41

13. október 2025, kl. 16:15 til 18:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varaformaður
  • Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
  • Líneik Anna Sævarsdóttir

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 916 liður 15

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 13. október.

  • Bæjarstjórn, fundur 404 liður 5

    Til máls tók Ragnar Sigurðsson.

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 12. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Siðareglur fjölskyldusviðs

    Mál 1805169 Allur ferill málsins

    Uppfærðar siðareglur fjölskyldusviðs lagðar fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir siðareglurnar og vísar áfram til bæjarráðs.

  2. 2. Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði

    Mál 2510033 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar og umfjöllunar hugmynd um uppbyggingu Padelvallar í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Sviðstjóra fjölskyldusviðs er falið að funda með íþróttafélaginu Val og skólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar og skólastjóra Eskifjarðarskóla ásamt starfsmönnum íþróttahuss Reyðarfjarðar varðandi nýtingamöguleika salarins. Málið tekið fyrir að nýju.

  3. 3. Framkvæmdaáætlun barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar

    Mál 2510070 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaáætlun í barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2026-2028 lögð fram til samþykktar. Fjölskyldunefnd samþykkir áætlunina fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs.

  4. 4. Undirbúningur fyrir stofnun farsældarráðs Austurlands

    Mál 2509200 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu lagði fram drög að umsögn um stofnun farsældarráðs Austurlands. Fjölskyldunefnd samþykkir framlagða umsögn og felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að koma umsögninni til skila.