Bæjarráð, fundur 916
20. október 2025, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 404 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 20. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Málefni Verkmenntaskóla Austurlands
Mál 2510135 Allur ferill málsins
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands ásamt formanni skólanefndar fóru yfir málefni skólans með bæjarráði.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að hefja undirbúningsvinnu við skipulagsmál vegna markmiða skólans um byggingu nýs verknámshúss.
-
2. Rekstur málaflokka 2025
Mál 2506119 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar fyrir janúar til ágúst auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar - september 2025.
-
3. Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
Mál 2505129 Allur ferill málsins
Fjallað um málefni íþróttahúss á Eskifirði og framlögð sviðsmyndagreining sem starfshópur um íþróttahúsi hefur unnið að.
Starfshópurinn telur að nýbygging íþróttahúss við sundlaugina sé augljósasti og hagkvæmasti kosturinn til framtíðar, bæði út frá rekstrarhagkvæmni, samnýtingu mannauðs og framtíðarsýn um samfellda og góða íþrótta- og skólaaðstöðu á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að fela starfshópnum að vinna áfram að málinu og útfærslu kostnaðar- og verkáætlunar fyrir framkvæmdina á grunni sviðsmyndar þrjú.
-
4. Endurskoðun byggðaáætlunar
Mál 2510041 Allur ferill málsins
Tekin fyrir að nýju tillaga að byggðaáætlun og drög umsagnar lögð fram til umræðu. Gildandi áætlun var samþykkt á Alþingi 2022 og nær til ársins 2036 en aðgerðaáætlun hennar til ársloka 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögninni.
-
5. Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029
Mál 2509226 Allur ferill málsins
Framlögð drög að svari lögmanns sveitarfélagsins vegna kæru UHA úrgangsþjónustu 2026 til 2029.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
-
6. Umsókn um stofnframlög á árinu 2025
Mál 2502029 Allur ferill málsins
Framlögð niðurstaða úthlutunar stofnframlaga til íbúðabyggingar vegna umsóknar Fjarðabyggðar um framlög til 8 íbúða fyrir tekju- og eignalága en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt að veita stofnframlög vegna þeirra.
Bæjarráð samþykkir að veita 12% stofnstyrk til byggingu íbúðanna sbr. reglugerð 183/2020 um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga og vísar fjármögnun til fjárhagsáætlunar 2026. Fjármálastjóra falið að útfæra í fjárhagsáætlun ársins 2026.
-
7. Fjölgun íbúða með stofnframlögum
Mál 2510094 Allur ferill málsins
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum til þeirra sem eru undir tekju - og eignamörkum.
Vísað til vinnu við gerð húsnæðisáætlunar sveitarfélagsins og tekið fyrir að nýju samhliða niðurstöðum hennar.
-
8. Siðareglur fjölskyldusviðs
Mál 1805169 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum siðareglur fjölskyldusviðs.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar siðareglur fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Framkvæmdaáætlun barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Mál 2510070 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs framkvæmdaáætlun í barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2026-2028.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdaáætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Erindi frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar
Mál 2510119 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar vegna ýmissa mála sem hafa verið í umræðunni frá því seint í sumar ásamt öllu öðru sem hvíldi á íbúum.
Bæjarráð þakkar erindið og vísar því til skipulags- og framkvæmdasviðs til skoðunar og útfærslu eftir því sem við á.
-
11. Árshátíð SSF 2026
Mál 2510106 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Skemmtifélags starfsmanna Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu afnota af íþróttahúsi Reyðarfjarðar vegna árshátíðar SSF
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til árshátíðar félagsins. Útgjöldum mætt af liðnum óráðstafað 21690.
-
12. Afnot af íþróttahúsi v. Kommablóts 2026
Mál 2509207 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni um styrk til greiðslu fyrir afnot af íþróttahúsi í Neskaupstað vegna Kommablóts.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Kommablótið sem nemur afnotum af íþrótthúsinu. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
-
13. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál 2502038 Allur ferill málsins
Fundargerð 986. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
-
14. Stjórn menningarstofu - 24
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 13. október
-
15. Fjölskyldunefnd - 41
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 13. október.
- 15.1 Siðareglur fjölskyldusviðs1805169
- 15.2 Uppbygging padelvallar á Reyðarfirði2510033
- 15.3 Framkvæmdaáætlun barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar2510070
- 15.4 Undirbúningur fyrir stofnun farsældarráðs Austurlands2509200
-
16. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 44
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 16. október.
- 16.1 Göngu- og hjólastígur frá Sómastöðum að afleggjara austan við álver2409096
- 16.2 Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 20262510021
- 16.3 Breyting á aðal- og deiliskipulagi v. Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður2509106
- 16.4 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Neskaupstaðar Hafnarbraut 212510105
- 16.5 Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 20252510075
- 16.6 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20262505170