Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 915

13. október 2025, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 404 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Kristinn Þór Jónasson, Birgir Jónsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 til 2029

    Mál 2509226 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Kærunefndar útboðsmála vegna framhaldskæru UHA úrgangsþjónustu ehf. vegna útboðs á úrgangsþjónustu í Fjarðabyggð 2026 til 2029.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra í samstarfi við lögmann sveitarfélagsins að bregðast við kærunni.

  2. 2. Húsnæði Nesskóla 2025

    Mál 2505069 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni tónlistarskólans og húsnæði Nesskóla.

    Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að gera nánari úttekt á húsnæði skólans og sérstaklega að yfirfara gólfplötu kjallara eldri byggingar. Úttektin lögð fyrir bæjarráð.

  3. 3. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2026

    Mál 2510045 Allur ferill málsins

    Húsnæðis og mannvirkjastofnun óskar eftir endurskoðun húsnæðisáætlanir Fjarðabyggðar fyrir árið 2026.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og greiningarsviðs að uppfæra áætlun sveitarfélagsins og leggja fyrir bæjarráð.

  4. 4. Móttaka nýrra íbúa í Fjarðabyggð

    Mál 2510063 Allur ferill málsins

    Farið yfir móttöku nýrra íbúa. Framlögð drög að bæklingi sem sendur verður nýjum íbúum með reglubundnum hætti.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að útfærslu á móttöku nýrra íbúa.

  5. 5. Byggingar á þekktum flóðasvæðum

    Mál 2509116 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar í bæjarráði erindi Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna bygginga á þekktum áhættusvæðum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að funda með forstjóra Náttúruhamfaratrygginga Íslands og leggja niðurstöður þess fundar fyrir bæjarráð.

  6. 6. Endurskoðun byggðaáætlunar

    Mál 2510041 Allur ferill málsins

    Endurskoðun byggðaáætlunar lögð fram til kynningar.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn um byggðaáætlun og leggja fyrir bæjarráð.

  7. 7. Byggðaráðstefnan 2025 í Mývatnssveit 4. nóvember

    Mál 2510047 Allur ferill málsins

    Boðað eru til Byggðaráðstefnunnar 2025 sem haldin verður þriðjudaginn 4.nóvember 2025 í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Ráðstefnan er undir yfirskriftinni er félagslegur fjölbreytileiki samfélaga, jafnvægi, áskoranir eða vannýtt sóknarfæri?

    Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar að mæta á ráðstefnuna.

  8. 8. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2026

    Mál 2510062 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Verkmenntaskóla Austurlands vegna tæknidags fjölskyldunnar þar sem óskað er eftir stuðningi til greiðslu húsaleigu vegna íþróttahússins á Norðfirði. Verkmenntaskóli Austurlands heldur daginn í ellefta skipti en skólinn á 40 ára afmæli á næsta ári.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja tæknidaginn með sama hætti og verið hefur sem nemur kostnaði við afnot af íþróttahúsinu og þátttöku málasviða sveitarfélgsins á deginum.

  9. 9. Aðalfundarboð - Arðsúthlutun

    Mál 2509216 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð aðalfundar Fiskiræktar og veiðifélags Norðfjarðarár.

  10. 10. Þingsályktun um leit að olíu og gasi

    Mál 2510072 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar tillaga til þingsályktunar um leit að olíu og gasi og að Alþingi álykti að hafnar verði að nýju markvissar rannsóknir á olíu- og/eða gaslindum á landgrunni Íslands og ríkisolíufélag verði sett á laggirnar.

    Bæjarráð felur bæjarritara að senda inn umsögn á grundvelli fyrri bókana um málið.

  11. 11. Frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

    Mál 2503060 Allur ferill málsins

    Framlagt til umsagnar frumvarp vegna kílómetragjalds á ökutæki sem er lagt fyrir Alþingi að nýju.

    Bæjarráð felur bæjarritara að veita umsögn um frumvarpið á grunni fyrri umsagna um málið.

  12. 12. Kvennaverkfall 50 ára

    Mál 2510032 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá framkvæmdastjórn Kvennaárs 2025 vegna 50 ára afmælis kvennafrídagsins.

    Bæjarráð samþykkir að starfsfólki sveitarfélagsins verði gefinn kostur á að taka þátt í viðburðum sem tengjast deginum og stjórnendum falið að útfæra fyrirkomulagið með tilliti til þjónustu stofnana.

  13. 13. Hafnarstjórn - 331

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20262505143
    2. 13.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20262508188
    3. 13.3 Umsókn um styrki til menningarmála hljómsveitin Rown2509147
    4. 13.4 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20252502023
  14. 14. Stjórn menningarstofu - 23

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 6. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 14.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins2206071
    2. 14.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20262508192
    3. 14.3 Umsókn um styrki til menningarmála hljómsveitin Rown2509147
    4. 14.4 Heimsókn Big Band Ribe í okt 20262510001
    5. 14.5 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð2508067
  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 43

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 9. október.

    1. 15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20262505170
    2. 15.2 Breiðdals og Stöðvarfjarðarskóli starfsemi leikskóla2509151
    3. 15.3 Jarðhiti jafnar leikinn - Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita2503223
    4. 15.4 Framkvæmdaleyfi- 4.000m2 plan á núverandi gróðurlosunarsvæði á Norðfirði.2509191
    5. 15.5 Framkvæmdaleyfi endurnýjun Búðarvegi, 750 Fáskrúðsfirði2510030
    6. 15.6 Ályktun samþykkt á aðalfundi 20252509170
    7. 15.7 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík2510022